Eplaterta – þessi klassíska

eplakaka eplaterta bakstur terta EPLI góð terta kaffimeðlæti
Eplaterta – þessi klassíska

Eplaterta – Allir elska nýbakaðar eplakökur.  Venjulega minnka ég smjörmagnið og læt svolítið af góðri matarolíu, þannig verður hún enn mýkri. Til spari er gott að strá furuhnetum yfir deigið áður en kakan er bökuð

EPLATERTURTERTURKAFFIMEÐLÆTI

.

Eplakaka – klassísk

250 g smjör

250 g sykur

3 egg

þeytið vel saman.

250 g hveiti

2 tsk lyftiduft

1/2 tsk salt

blandað saman við

4 græn epli flysjuð og skorin í þunnar sneiðar

1/2 af deiginu settur í 24 cm form
raðið tveimur niðurskornum eplum ofan á og 1 1/2 tsk kanil ofan á.
Endurtekið, deig, epli kanill.
Bakið í 40-50 mín við 200°

.

EPLATERTURTERTURKAFFIMEÐLÆTI

— EPLATERTA —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.