Sítrónubaka – tarte au citron

Sítrónubaka tarte au citron, Fáskrúðsfjörður, Gravelines, Jón björn hákonarson hildur frakkland baka, sítróna franskt franskur frakkland vinabær fáskrúðsfjarðar
Sítrónubaka – tarte au citron

Frönsk sítrónubaka er unaðslega góð. Súra sítrónubragðið á móti sæta sykrinum smellpassar og getur orðið ávanabindandi….

 BÖKUR — FRAKKLANDSÍTRÓNUBÖKURFÁSKRÚÐSFJÖRÐURGRAVELINES —

Frönsk sítrónubaka

Deigið:

1 1/4 b hveiti
1 msk sykur
1/2 tsk salt
120 g smjör við stofuhita
3 msk kalt vatn.

Blandið öllu saman og látið standa góða stund. Stundum útbý ég deigið deginum áður og geymi í ísskápnum.

Fylling:

130 g smjör
1 dós sýrður rjómi
2 egg
3 eggjarauður
2/3 b ferskur sítrónusafi
1/2 b sykur
4 tsk sítrónubörkur.

Fletjið út deigið og setjið í eldfast form, bakið við 175° í 15 mín.

Bræðið saman smjör og sýrðan rjóma yfir vatnsbaði – takið til hliðar. Látið egg, eggjarauðu og sykur í skál og þeytið vel yfir vatnsbaði. Blandið saman við sítrónusafa og hrærið yfir sjóðandi vatninu í um 3 mín. Bætið við sítrónuberki og smjör/sýrða rjómanum. Hrærið vel saman í um 5 mín.

Látið yfir bökuskelina og bakið í 25-30 mín. Berið fram við stofuhita.

Sítrónubaka Gravelines Fáskrúðsfjörður
Sítrónubaka – tarte au citron

Myndirnar eru teknar í Gravelines í Frakklandi, vinabæ Fáskrúðsfjarðar.

.

 BÖKUR — FRAKKLANDSÍTRÓNUBÖKURFÁSKRÚÐSFJÖRÐURGRAVELINES —

— SÍTRÓNUBAKA – TARTE AU CITRON —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.