Ítalskt bananabrauð

Ítalskt bananabrauð Nigella Lawson ítalía brauð bananar kynþokkafull kynþokki ítalskur matur brauð
Ítalskt bananabrauð

Ítalskt bananabrauð

Vinkona mín, hin kynþokkafulla Nigella var að gefa út nýja bók, Nigellissima. Þar er hún með ítalskar uppskriftir og fer mikinn. Þáttasería þar sem hún eldar upp úr þessari bók er nýbyrjuð í Englandi. Þetta girnilega bananabrauð eru úr nýju bókinni hennar – ótrúlega gott að smyrja sneiðarnar með mascarpone og strá kanil yfir. Legg ekki meira á ykkur, drífið ykkur að baka.

🍌

— ÍTALÍABANANABRAUР— NIGELLAKYNÞOKKIENGLAND

🍌

Ítalskt bananabrauð

150 ml ólífuolía
3 bananar
2 tsk vanilluextract
1/3 tsk salt
2 egg
130 g sykur
1 1/2 b hveiti
1/2 tsk matarsódi
4 tsk instant espressó kaffiduft

Maukið saman bananana með gaffli, bætið við vanillu, olíu og salti. Bætið við eggjunum og loks sykrinum – hrærið vel með sleif. Bætið við þetta hveiti, matarsóda og kaffidufti. Blandið vel saman og bakið í smurðu jólakökuformi í 50-60 mín við 170°

Smyrjið sneiðarnar með maskarpone og stráið yfir kanil.

Það má líka baka múffur úr þessu deigi. Það dugar í ca 12 múffur, bakið þær í um 20 mín við 200°C.

🍌

Ítalskt bananabrauð
Ítalskt bananabrauð

 

Ítalskt bananabrauð
Nigella

🍌

— ÍTALÍABANANABRAUР— NIGELLAKYNÞOKKIENGLAND

— ÍTALSKT BANANABRAUÐ —

🍌

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.

Fyrri færsla
Næsta færsla