Köld súkkulaðikexkaka

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Köld súkkulaðikexkaka. Óbökuð kaka eins og þessi er kjörið til að leyfa krökkum að útbúa. Á meðan “deigið” var útbúið var ofnskúffan í kælingu í ísskápnum, kakan þrufti því ekki nema rúman klukkutíma í ísskáp þangað til hún var orðin nógu stíf til að skera hana í bita.

Köld súkkulaðikexkaka

250 g gróft mjólkurkex frá Frón

300 g dökkt gott súkkulaði

100 g smjör

150 g síróp

100 g apríkósur, saxaðar

75 g rúsínur

60 g pekanhnetur, saxaðar

smá salt

Bræðið saman í potti súkkulaði, smjör og síróp. Bætið út í apríkósum, rúsínum, hnetum og salti. Myljið mjólkurkexið gróft og setjið það seinast út í, blandið vel saman. Setjið bökunarpappír á ofnskúffu, dreifið úr “deiginu” þannig að það verði ca 2 cm þykkt. Kælið. Skerið í 5×4 cm bita.

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Köld súkkulaðikaka

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.

Fyrri færsla
Næsta færsla