Spaghetti a la Demetz

Suður-Týról 1912 Sigurður Demetz Franzson með spaghettíið spaghetti ítalía ítalskur matur góða í Gestgjafinn.
Sigurður Demetz Franzson með spaghettíið góða í Gestgjafanum árið 2002.

Spaghetti a la Demetz

Í mörg ár skrifaði ég í Gestgjafann, mér til mikillar ánægju. Eitt eftirminnilegasta viðtalið var við Sigurð Demetz Franzson söngvara sem þá stóð á níræðu. Demetz fæddist í Suður-Týról árið 1912.  „Munið að sjóða spagettí í 7 mínútur ekki meira og ekki minna.” sagði hann aðspurður um galdurinn við að sjóða pasta. Þegar Demetz flutti til Íslands árið 1955 var hér hvorki til spaghetti né annað pasta og enginn vissi hvað það var – hann lét því senda sér pasta, tómatvörur og ýmislegt annað frá Ítalíu.

🇮🇹

SPAGHETTI PASTARÉTTIR — ÍTALÍAKÚRBÍTURGESTGJAFINNAUSTURRÍKI

🇮🇹

Spaghetti Spaghetti a la Demetz Sigurð Demetz Fransson óperusöngvari Gestgjafinn
Spaghetti a la Demetz

Spaghetti a la Demetz

1/4 l ólífuolía
1/2 eggaldin
1/2 kúrbítur
2 laukar
250 sveppir
1 græn paprika
1/2 blaðlaukur
1/2 kg tómatar afhýddir og kjarninn tekinn úr
2 dósir tómatar saxaðir
1 dós Cirio tómatsósa
1 dós Cirio tómatpurée
10-15 blöð ferskt saxað basil
2-3 greinar ferskt rósmarín
5-7 Honig súputeningar nauta
chili pipar
salt og pipar

1 kg spaghetti

Hitið olíuna í stórum potti. Rífið eggaldin og kúrbít niður á rifjárni og skerið annað (lauk, sveppi, papriku, blaðlauk) frekar smátt og steikið í olíunni. Bætið við tómötum, tómatsósu, tómatmauki, kryddi og súputeningum. Látið sjóða við vægan hita í 2-3 klukkustundir og hrærið í reglulega.

Sjóðið spaghetti samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Hellið á sigti og látið renna kalt vatn á í örstutta stund. Setjið í skál.

Setjið spaghetti á djúpan disk, sósu yfir og loks rifinn parmigiano yfir.

Sigurður Demetz Franzson með spaghettíið í Gestgjafanum, 4. tbl. 2002.
Spaghettiréttur Sigurðar Demetz Franzsonar í Gestgjafanum

🇮🇹

SPAGHETTI PASTARÉTTIR — ÍTALÍAKÚRBÍTURGESTGJAFINNAUSTURRÍKI

— SPAGHETTI A LA DEMETZ —

🇮🇹

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.

Fyrri færsla
Næsta færsla