Steiktur kjúklingur eftir þeldökkri konu í New Orleans

 New Orleans bandaríkin usa bandarískur matur Steiktur kjúklingur eftir þeldökkri konu í New Orleans Sigurlaug margrét jónasdóttir Silla góður kjúlli
Steiktur kjúklingur eftir þeldökkri konu í New Orleans

Steiktur kjúklingur eftir þeldökkri konu í New Orleans. Útvarpskonan ágæta, Sigurlaug M. Jónasdóttir las þessa uppskrift upp í matarþætti sínum fyrir mörgum árum. Lesturinn var svo áhrifaríkur að þarna hlaut að vera ljúffengur steiktur kjúklingur. Já já þetta er ljúffengur kjúklingur.

SIGURLAUG MARGRÉT — KJÚKLINGURBANDARÍKIN

  Steiktur kjúklingur eftir þeldökkri konu í New Orleans


Kjúklingalæri
lögð í mjólk í 15 mín.

Blandað saman:

2 dl hveiti
1 msk paprika
1 msk karrý
2 tsk salt
malaður pipar

Nuddið kjúklingabitana með þessari blöndu.

Steikið upp úr:

4 hlutum góðri olíu
1 hluta sesamolíu
5 mín á hvorri hlið við meðalhita með loki,  slökkvið þá undir og takið lokið af.

Raðið bitunum í eldfast mót og setjið í ofn við 180°C og um leið er slökkt á honum þar til mestur hitinn er farinn.  Vessgú

Steiktur kjúklingur eftir þeldökkri konu í New Orleans
Steiktur kjúklingur eftir þeldökkri konu í New Orleans

.

— STEIKTUR KJÚKLINGUR EFTIR ÞELDÖKKRI KONU Í NEW ORLEANS —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.