Fíkjubrauð

Fíkjubrauð gráfíkjur fíkjur brauð múskat  KRYDDBRAUÐ krydd döðlur hnetur valhnetur
Fíkjubrauð

Fíkjubrauð. Mikið óskaplega er gaman að baka. Í dag er það fíkjubrauð sem rennur ljúflega niður með góðum kaffibolla. Í upphaflegu uppskriftinni er tekið fram að maður eigi að sjóða fíkjurnar í nokkrar mínútur, ég sleppti því enda engin ástæða til. Bökum og bökum.

FÍKJURBRAUÐKRYDDBRAUÐ

Fíkjubrauð

3/4 b (soya)mjólk
1/2 tsk sítrónubörkur
1/2 tsk múskat
1/4 tsk negull
2/3 b fíkjur, saxaðar gróft
1/3 b döðlur, saxaðar gróft
2 msk púðursykur
3 msk góð olía
2 egg
1 2/3 b heilhveiti
1 1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
1/3 b valhnetur, saxaðar

Blandið öllu saman í skál og hrærið vel. Bakið í jólakökuformi í um 40 mín á 175°C

.

— FÍKJUBRAUÐ —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.