SÚKKULAÐIsmákökur með hnetum

SÚKKULAÐIsmákökur með hnetum hnetur möndlur fræ súkkulaði jóla smákökur jólaabakstur
SÚKKULAÐIsmákökur með hnetum

SÚKKULAÐIsmákökur með hnetum. Nú er ég algjörlega að missa mig í súkkulaðinu, ofurgóða súkkulaðinu. Í þessar kökur má nota hvaða tegund af hnetum sem fólk vill, ber eða fræ. Njótið vel með kaffi eða ís eða……

SÚKKULAÐIsmákökur með hnetum

100 g af súkkulaði

1-2 dl hnetur, möndlur, fræ, ber, rúsínur, kókosmjöl eða annað

Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði. Saxið hneturnar, möndlurnar, berin eða það sem þið ætlið að nota. Setjið bökunarpappír á bakka. Setjið ca eina teskeið af súkkulaði fyrir hverja köku, stráið hnetum, möndlum, berjum eða annari hollustu yfir. Kælið

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.