Rababarabaka góðrar grannkonu

Rabarbarabaka Rababarabaka Viðar, Jóhann, Gissur Páll og Hildur Ýr GÍSLADÓTTIR Bergþór, Garðar Thór og Páll Björgvin sætabrauðsdrengirnir góðrar grannkonu Hildur Ýr Páll Björgvin Norðfjörður neskaupstaður rabarbarabaka
Rababarabaka góðrar grannkonu

Rababarabaka góðrar grannkonu

Bæjarstjórahjónin í Fjarðabyggð bauð Sætabrauðsdrengjunum í mat í frægðarför hópsins austur á land. Dásamlegur silungur rann ljúflega niður og á eftir var þessi góða rabarbarabaka.

.

HILDUR ÝRRABARBARINESKAUPSTAÐURSÆTABRAUÐSDRENGIRNIR

.

Rababarabaka góðrar grannkonu

Rabbabari niðursneiddur – í stórt eldfast mót eða tvö lítil. Þannig að hann hylji botninn vel. 2 tsk kanill

2 msk súkkulaðispænir

Deig:

300 g hveiti

200 g púðursykur

100 g kókosmjöl

2 tsk vanillusykur

200 g smjör

Allt hnoðað saman í skál.

Rabarbarinn settur í botninn á eldföstu móti og kanil dreift yfir ásamt ljósum súkkulaðispæni.

Síðan er deigið sett yfir rabbabarann og sett inn ofn – bakað á 180 gráðum í 20 – 30 mínútur.

Berið fram með þeyttum rjóma eða ís.

Viðar, Bergþór, Garðar Thór og Páll Björgvin
Jóhann, Gissur Páll og Hildur Ýr

.

HILDUR ÝRRABARBARINESKAUPSTAÐURSÆTABRAUÐSDRENGIRNIR

— RABARBARABAKA —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.