Muffins með karamellukurli

muffins vestmannaeyjar Þorgerður Katrín Adolfsdóttir eyjar maría sigurbjörnsdóttir hólagerði heimaey adolf þórsson Muffins með karamellukurli
Þorgerður Katrín með muffinskökurnar

Muffins með karamellukurli

Á dögunum fórum fjölskyldan til Vestmannaeyja, þar tóku höfðinglega á móti okkur María frænka mín og Addi hennar maður og nærðu okkur andlega og líkamlega. Hann fór með okkur um Heimaey og hún bauð upp á kaffihlaðborð að ferðinni lokinni – þar var meðal annars boðið upp á muffins með karamellukurli.

.

MUFFINSVESTMANNAEYJARMARÍA SIGURBJÖRNSKARAMELLU…

.

Muffins með karamellukurli

2 ½ b hveiti

1 b sykur

½ lyftiduft (vínsteins)

½ tsk salt

1 bolli súrmjólk

3 egg

200 g brætt smjör

1 tsk vanilludropar

150 g Karamellukurl

100 g suðusúkkulaði

Þurrefnum blandað saman og hitt sett saman við. Kurlið og súkkulaðið sett í síðast. Sett í lítil muffinsform og bakað við 200° í 15 -20 mín.

Brimnesfjölskyldan á bryggjunni í Vestmannaeyjum. María og Adolf eru lengst til hægri.

.

MUFFINSVESTMANNAEYJARMARÍA SIGURBJÖRNSKARAMELLU…

— MUFFINS MEÐ KARAMELLUKURLI —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.