Marineraður fiskur Diddúar

Marineraður fiskur Diddúar diddú sigrún Hjálmtýsdóttir edik rósapipar forréttur Diddú, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Bergþór Marineraður fiskur Diddúar
Marineraður fiskur Diddúar

Marineraður fiskur Diddúar

Vó hvað þessi réttur er spennandi og passar vel á hlaðborð eða sem forréttur. Hentar þeim sem eru í tímahraki, fínt að útbúa réttinn daginn áður. Hér er uppskriftin eins og söngdrottningin sendi hana 🙂

  — DIDDÚFISKRÉTTIR

.

Marineraður fiskur

Vænt ýsuflak (skorið í þunna bita)
Safi úr sítrónum og lime (það magn að drekki fiskinum)
Slatti af ólífuolíu
Slatti af rósapipar
Slatti af kapers
Slatti af ólífum (skornar þunnt)
Slatti af niðurrifnu fersku dilli
Setjið allt saman og látið marinerast í skál í ísskáp yfir nótt.

.

Diddú Anna Guðný Bergþór
Diddú, Anna Guðný og Bergþór

.

  — DIDDÚFISKRÉTTIR

— MARINERAÐUR FISKUR DIDDÚAR —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.