Apríkósukryddmauk

Apríkósukryddmauk apríkósur kóríander cummín
Apríkósukryddmauk

Apríkósukryddmauk

Apríkósukryddmauk á vel við með mörgum réttum, t.d. bauna-, grænmetis- og kjötréttum.  Svo má líka nota það ofan á (ristað)brauð og með ostum. Þegar ég smakkaði apríkósumauk í fyrsta sinn upplifði ég það eins og ígildi góðrar sósu.

.

APRÍKÓSUR

.

Apríkósukryddmauk

3-4 dl þurrkaðar apríkósur
1 tsk cummín
1 tsk ferskur kóríander
1 tsk kardimommuduft
2 cm fersk engifer
vatn

Setjið allt hráefnið í pott, látið vatn rétt fljóta yfir og sjóðið í u.þ.b. 15 mín. Setjið í matvinnsluvél og maukið. Berið fram volgt eða geymið í ísskáp, í glerkurkku með loki.

.

APRÍKÓSUMAUK

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.

Fyrri færsla
Næsta færsla