Dórukex

Dórukex dóra emils listaháskólinn hrökkkex mötuneyti möndlumjöl kex fræ frækex ostakex halldóra emils
Dórukex

Dórukex

Hef marg oft áður skrifað hér um matarást mína á Dóru í eldhúsi Listaháskólans, af henni hef ég lært fjölmargt í gegnum tíðina. Dóra hefur sérhæft sig í hollum og góðum mat, mat sem fólk á öllum aldri ætti að borða daglega (mest grænmeti, hnetur, ávextir, fræ og minna af dýraafurðum). Heilsa okkar er beintengd því sem við borðum, það er ágætt að hafa hugfast að flestir svonefndir menningarsjúkdómar eru matartengdir. Það verður að taka á heilsu- og sjúkdómavandamálum þjóðarinnar. Hreyfum okkur og borðum hollan mat.  ÍSLENDINGAR VÖKNUM !

.

HRÖKKKEXDÓRA EMILSLISTAHÁSKÓLINN

.

Dórukex
Dóra við súpupottinn

Dórukex

8 dl fræ (hörfræ, sesam, sólblómafræ, graskers….)
2-3 egg
1 tsk laukduft
1 1/2 tsk maldonsalt
1 msk möndlumjöl
1 msk oreganó
2 dl rifinn (parmasen)ostur

Setjið allt í skál og blandið vel saman (myljið saltið milli fingranna). Setjið smjörpappír í ofnskúffu, deigið yfir og aftur smjörpappír yfir það, fletjið út með kökukefli, ca sentimeters þykkt. Bakið við 160° í 20 mín lækkið þá hitann í 110°C, snúið kexinu við með því að hvolfa því á aðra ofnskúffu, eða plötu, bakið áfram í 15 mín

Dóra með Dórukex

.

— HRÖKKKEXDÓRA EMILSLISTAHÁSKÓLINN

— DÓRUKEX —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.