Fíkjuterta

Fikjuterta fíkjur gráfíkjur hráterta kaka raw food cake
Fíkjuterta

Fíkjuterta. Þegar ég var lítill fór ég stundum í búrið hjá mömmu og stal mér gráfíkjum (samt bara einni í einu…). Sem betur fer var mamma svo umburðarlynd að hún gerði aldrei veður út af þessu og ég reikna ekki með að hún fari að skamma mig núna þó ég viðurkenni smáþjófnaðinn hér 🙂 En það er nú önnur saga, þegar maður hefur lítinn tíma til að útbúa kaffimeðlæti eða eftirrétt er sennilega best að útbúa hráfæði. Það tók nákvæmlega níu mínútur að gera þessa tertu. Þá átti að vísu eftir að taka til í eldhúsinu – þar var allt í rúst. Passið að setja ekki of mikið vatn því þá verður tertan of lin. Mér var bent á að ég væri búinn að skrifa mjög oft að hrákökur eins og þessi er oft jafngóðar ef ekki betri daginn eftir… Þannig að ég ætla ekkert að nefna það núna 😉

Fíkjuterta

Botn:

3 dl pekan hnetur

3 dl rúsínur

1/3 tsk salt

Fylling:

5 dl kasjúhnetur

1 dl fljótandi kókosolía

3 dl þurrkaðar fíkjur

safi úr einni sítrónu

ca 1 dl vatn (eða minna)

1/2 dl mable síróp eða gott hunang

Skraut:

bláber, jarðarber, vínber og ristaðar möndluflögur.

Botn; Setjið hentur, rúsínur og salt í matvinnsluvél og maukið. Takið hringinn af tertuformi og setjið á tertudisk. Látið maukið þar í  og þjappið.

Fylling: Maukið kasjúhnetur og fíkjur saman í matvinnsluvél, bætið við kókosolíu, sítrónusafa, sírópi og vatni. Setjið þetta yfir botninn. Skreytið með berjum og ristuðum möndluflögum. Kælið.

FLEIRI HRÁTERTUR

Fikjuterta Sætabrauðsdrengirnir gissur garðar Viðar

Sætabrauðsdrengirnir á góðri stund

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.