Bananakjúklingur

Bananakjúklingur kjúlli grænmeti pottréttur banani kjúklingur
Bananakjúklingur

Bananakjúklingur

Æskilegt er að fólk borði grænmeti. Ætli það kæmi ekki ágætlega út ef innan við fjórðungur af því sem er á diskum okkar komi úr dýraríkinu – svo má líka lifa góðu lífi með því að sleppa alveg dýraafurðum. Þó hér sé um kjötrétt að ræða er kjötið langt frá því að vera í aðalhlutverki. Svo er alltaf gott að nota ávexti með krydduðum mat, hér eru það bananar.

Rétt áður en ég varð táningur dvaldi ég á sjúkrahúsinu á Landakoti í Reykjavík hjá nunnunum. Oftar en ekki var á kvöldin smurt franskbrauð með niðurskornum bönunum. Þó mér hafi þótt bananar góðir áður, fékk ég alveg nóg af þeim þarna. En nú er öldin önnur og ég búinn að taka banana í sátt að nýju.

KJÚKLINGURBANANAR

.

Bananakjúklingur

1 kjúklingur

2 msk Húnagull krydd (eða uppáhalds kryddblandan ykkar)

1 1/2 dl olía

1 laukur

5 hvítlauksrif

4 tómatar

3 gulrætur

3-4 cm engifer

1 sellerýstilkur

3 paprikur (gul, rauð, græn)

2 dl strengjabaunir

3 óþroskaðir tómatar.

Úrbeinið kjúklinginn og skerið hann í bita. Kryddið með Húnagulli og blandið helmningnum af olíunni saman við. Látið standa í um tvær klst. Steikið kjúklinginn á pönnu og setjið í eldfast form. Saxið lauk og steikið í á pönnunni með restinni af olíunni. Saxið hvítlauk, tómata, gulrætur (í sneiðar), sellerý og paprikur og bætið saman við. Látið malla í nokkrar mínútur. Bætið við strengjabaunum. Hellið þessu yfir kjúklinginn og bakið í ofni í um 30 mín. við 170° Skerið bananana í sneiðar og setjið yfir þegar um 10 mín eru eftir af steikingatímanum. Stráið saxaðri steinselju yfir og berið fram með hrísgrjónum.

Bananakjúklingur

Bananakjúklingur

KJÚKLINGURBANANAR

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.

Fyrri færsla
Næsta færsla