Rabarbarasulta með engifer
Ó blessað sultutauið sem hefur fylgt þjóðinni í gegnum aldirnar. Held ég hafi borðað yfir mig af rabarbarasultu í æsku, eða svona næstum því…. Við Marsibil suðum rabarbarasultu og hún sá um að merkja krukkurnar.
— RABARBARASULTA — RABARBARI — SULTA — ENGIFER —
.
Rabarbarasulta með engifer
1 kg rabarbari
600 g sykur
3 msk vatn
safi úr einni sítrónu
börkur af einni sítrónu
1 msk rifið engifer
smá salt
Skolið rabarbarann og saxið hann frekar smátt, setjið allt í pott og sjóðið og sjóðið þangað til ykkur finnst liturinn vera orðinn fallega og passlega dökkur. Það er ágætt að loka ekki alveg pottinum og hræra reglulega í. Setjið í tandurhreinar glerkrukkur og lokið þeim strax.
— RABARBARASULTA — RABARBARI — SULTA — ENGIFER —
.