Aðalbláberjabaka – alveg himnesk og á alltaf við

Aðalbláberjabaka – alveg himnesk og á alltaf við bláber Bláberjabaka, aðalbláber, svarfvaðardalur, Helga Bryndís magnúsdóttir kaffimeðlæti pæ baka pæja pai paj ber berjabaka bláber
Aðalbláberjabaka

Aðalbláberjabaka

Þessi baka er alveg himnesk og á alltaf við – sumar, vetur, vor og haust. Aðalbláberin í bökuna sem Helga Bryndís kom með í föstudagskaffið eru úr Svarfaðardal en auðvitað má nota bláber. Brettið upp ermar og bakið 🙂

.

FÖSTUDAGSKAFFIÐBLÁBER — FÖSTUDAGSKAFFIР—

.

Aðalbláberjabaka

Botn

200 g hveiti
100 g smjör
2 msk sykur
1 msk vatn
1 eggjarauða
salt á hnífsoddi

Fylling:

4 dl (aðal)bláber
1 tsk kartöflumjöl
2 msk sykur

Botn: Hrærið vel saman í hrærivél og þjappið í bökuform.

Fylling: Blandið saman berjum, kartöflumjöli og sykri og setjið ofan á bökudeigið. Bakið við  200° (allavega) í u.þ.b. 20 mín ( kannski meira )

.

Aðalbláberjabaka – alveg himnesk og á alltaf við
Aðalbláberjabaka

.

— BLÁBERBÖKURHELGA BRYNDÍS — FÖSTUDAGSKAFFIР—

— AÐALBLÁBERJABAKA —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.