Bláberja- og croissanteftirréttur

Croissant bláber, Bláberja- og croissanteftirréttur, það er nú allt svo gott fyrir austan fáskrúðsfjörður
Bláberja- og croissanteftirréttur

Bláberja- og croissanteftirréttur. Kjörinn réttur í saumaklúbbinn eða sem eftirréttum já eða bara með sunnudagskaffinu. Kannski ekki sá allra hollasti en með því að vera meðvitaður um mataræðið dags daglega (frá morgni til kvölds) verður auðveldara að njóta þess að fá endrum og sinnum réttti eins og þennan. Ég er svo heppinn að eiga enn í frysti extragóð bláber að austan frá síðasta sumri. Elstu menn muna ekki aðra eins bláberjatíð og var í sumar. („Það er nú allt svo gott fyrir austan” eins og Bergþór minn segir þegar ég dásama Fáskrúðsfjörð og Austurland allt)

 

Croissant bláber Bláberja- og croissanteftirréttur mascarpone
Bláberja- og croissanteftirréttur

Bláberja- og croissanteftirréttur

3-4 croissant

50 g marsipan, skorið í litla bita

1 b bláber, fersk eða frosin

1 ds mascarpone

1/3 b sykur

1 tsk vanilla

2 egg

2 dl rjómi

Skerið croissant gróft og setjið í form, stráið bláberjum og marsípani yfir. Þeytið saman mascarpone, sykur og vanillu, bætið loks eggjum við og rjómanum (ath að rjóminn á ekki að vera þeyttur þegar hann fer saman við). Hellið í formið. Bakið við 170° í um 40 mín. eða þar til þetta er fallega gyllt á litinn.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.