Milljónabomba – bara ekki nokkur leið að hætta

Milljónabomba - bara ekki nokkur leið að hætta AMARETTÓ ananas Milljónabomba, kókosmjöl, lady fingers, amarettó, koktelber, súkkulaði, mascarpone
Milljónabomba – bara ekki nokkur leið að hætta

Milljónabomba. Ó þetta er svo góður réttur, einn af þeim sem erfitt er að hætta að borða – þið vitið þegar maður nartar smávegis og svo aðeins meira…. Botninn í þessum undurgóða eftirrétti, sem er alveg milljón, er sá sami og í tiramisu. Munið bara að hafa kaffið sterkt, já og svo er ágætt að hafa mascarpone við stofuhita. Þannig er auðveldara að þeyta hann. Hugsið ykkur ekki tvisvar um, byrjið núna.

LADY FINGERSAMARETTÓANANASEFTIRRÉTTIR

Milljónabomba

2 dl sterkt kaffi
1/2 dl Amarettó (eða sérrý)
Lady fingers
1 ds Mascarpone
safi úr 1/2 sítrónu
3 dl rjómi
2/3 b kókosmjöl
1/4 ds ananas í litlum bitum (sigtið safann frá)
1-2 dl brytjað mangó (ferskt eða frosið)
1 b rauð og græn koktelber, söxuð gróft
1/2 b saxaðar pekanhnetur
dökkt gott súkkulaði til skrauts

Blandið saman kaffi og líkjör. Dýfið Lady fingers augnablik í og raðið þeim í form svo þær hylji botninn. Þeytið saman mascarpone og sítrónusafa. Þeytið rjómann, blandið mascarpone saman við svo kókosmjöli, ananas, mangó, koktelberjum og pekanhnetum. Blandið vel saman og setjið í formið, yfir lady fingers. Rífið súkkulaði yfir (og sítrónubörk ef vill).

Fleiri hugmyndir

Milljónabomba
Milljónabomba

.

— MILLJÓNABOMBA —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.