Raspterta með sítrónusmjörkremi

Raspterta með sítrónusmjörkremi lemon curd sítrónusmjör kaka terta rasp raspur páskar páskaterta veisla

Raspterta með sítrónusmjörkremi. Í mínu ungdæmi var ein besta terta sem ég fékk, raspterta með banönum og rjóma á milli og súkkulaðiglassúr ofan á. Á dögunum fékk ég áskorun um að færa þessa tertu aðeins til nútímans t.d. með því taka út rjómann. Eftir nokkrar tilraunir varð þessi litfagra terta til sem sómir sér vel á hvaða páskaborði eða á veisluborði sem er.

Raspterta með sítrónusmjörkremi

4 eggjarauður

3/4 b sykur

1 b gyllt rasp (Paxo)

1/2 b kókosmjöl

2 msk brætt smjör

2 stk lyftiduft

1 tsk vanilludropar

1/2 salt

3 msk kalt vatn

4 eggjahvítur

2 msk sulta

Krem:

1 ds mascarpone

1 dl sítrónusmjör (Lemon curd)

Ofan á:

börkur af einu lime

1 msk gróft saxaðar möndlur

2 msk síróp

smá salt

Botnar: Þeytið vel saman eggjarauður og sykur blandið vatni saman við.  Setjið rasp, kókosmjöl, lyftiduft, vanilludropa, salt og smjör saman við og hrærið áfram um stund. Stýfþeytið eggjahvítur og blandið þeim varlega saman við.

Setjið í tvö 20 cm smurð form. Bakið í ca 15-20 mín við 200 gr (eða þangað til botnarnir eru gylltir af ofan). Látið botnana kólna.

Krem: Þeytið vel mascarpone svo hann verði kekkjalaus, bætið saman við sítrónusmjöri og þeytið áfram.

Setjið annan botninn á tertudisk. Dreifið sultunni yfir og loks kreminu. Látið hinn botninn ofan á.

Setjið síróp og salt í pott og hitið, látið börk og möndlur saman við og veltið í sírópinu í nokkrar mínútur. Dreifið loks yfir tertuna.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.