Matarsódi

Matarsódi svitalyktareyðir
Matarsódi

Matarsódi

„Mikið rétt ég hef reynslu á magavandamálum og brjóstsviða og þar kemur matarsódin sér vel að gagni bara passa að setja helst ekki meira en eina teskeið í meðalstórt glas af vatni”

„2 dollur af Matarsóda útí vel heitt bað og liggja þar í 20 mín áður enn farið er að sofa. Snilldarleið til draga úr verkjum og bólgu í vöðvum og liðum.”

„Matarsódi er hinn besti svitalyktareyðir. Setjið ca hálfa teskeið af matarsóda í lófann, vætið með örlitlu vatni, nuddið milli lófanna og síðan undir hendurna. Alveg skothelt”

„Matarsódi jafnar sýrustig líkamans.  Matarsódi er sérstaklega góður til að gera líkamann meira basískan eða jafna sýrustig líkamans.  Mjög góður fyrir þá sem drekka mikið af kaffi, áfengi eða reykja. Notkun: 1 tsk af matarsóda í vatn einu sinni á dag og drekkið í 3 vikur og síðan hvílt í eina viku í senn. Matarsódinn mýkir vatn þegar hann er notaður í baðvatn.”

Sjá fleiri færslur: MATUR LÆKNAR 

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.