Um nesti

Matur og drykkur eftir Helgu Sigurðardóttur helga sig Helga sigurðar Nesti um nesti
Matur og drykkur eftir Helgu Sigurðardóttur

Um nesti

Gott og heilsusamlegt er að fara á sunnudögum út úr bænum, og fegurst er náttúra landsins snemma morguns. En þá er nauðsynlegt að hafa fjölfengt nesti með sér til þess að gera daginn sem ánægjulegastan. En þá koma skyldur húsmóðurinnar til greina. Venjulega hafa menn smurt brauð með sér í nesti, en oft er það mismunandi girnilegt eða lostætt, þegar til á að taka. Til þess að gera máltíðina sem mest aðlaðandi, verið þið að hafa með mislitan dúk bréfpentudúka, pappadiska og hnífapör. Þar að auki flöskuopnara, tappatogara og dósahníf, salt og pipar og annað krydd, ef með þarf. Þá kemur maturinn, og hvað eigum við nú að borða?

-Matur og drykkur eftir Helgu Sigurðardóttur

HELGA SIGGÖMUL RÁÐ

Maturogdrykkur

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.