Marokkóskir snjóboltar

Marokkóskir snjóboltar Andrea Guðmundsdóttir marokkóskur matur marokkó MÖTUNEYTI LISTAHÁSKÓLANS LHI listaháskólinn
Marokkóskir snjóboltar í höndum Andreu

Marokkóskir snjóboltar

Andrea vinkona mín í mötuneyti Listaháskólans galdraði fram þessar bollur sem runnu ljúflega niður með góðum kaffisopa. Annars munu snjóboltarnir vera vinsæll eftirréttur í Marokkó.

LISTAHÁSKÓLINN — MAROKKÓANDREA GUÐM

.

Marokkóskir snjóboltar
Marokkóskir snjóboltar

Marokkóskir snjóboltar

2 1/2 b hveiti

1/2 b sykur

1/2 b olía

2 egg

1 tsk lyftiduft

1/2 tsk salt

2 b kókosmjöl

1 b apríkósusulta

Hrærið eggjum og olíu saman, bætið við sykur, lyftidufti, salti, vanillu og loks hveiti.

Mótið litlar bollur og bakið þær við 180° í um 10 mín. Látið kólna.

Velgið apríkósusultuna örlítið. Veltið bollunum upp úr henni og síðan uppúr kókosmjölinu.

LISTAHÁSKÓLINN — MAROKKÓANDREA GUÐM

— MAROKKÓSKIR SNJÓBOLTAR —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.