L´abri á Fáskrúðsfirði

 

L´apri Fáskrúðsfjörður. Fosshótel, Franski spítalinn

Í Franska spítalanum á Fáskrúðsfirði, sem hýsir Fosshótel, er hinn bjarti og fallegi veitingastaður L´abri. Þar er eldað af metnaði undir frönskum áhrifum. Mikið var að gera á hótelinu og veitingastaðnum þegar við vorum fyrir austan á dögunum og vel bókað sumar, vetur, vor og haust. Það er vel þess virði að koma við á Fáskrúðsfirði, skoða snyrtilegan bæ og fá sér hressingu í Franska spítalnunum sem Minjavernd endurbyggði af miklum myndarbrag. Frá veitngastaðnum er hægt að ganga út á bryggju sem er þar fyrir framan og ljúft er á góðviðrisdögum að sitja að snæðingi á pallinum við hótelið. Inn af veitingastaðnum er svo vel heppnað safn um franska sjómenn (kannski ekki alveg hlutlaus þar sem ég kom að verkefninu…)

Allir til Fáskrúðsfjarðar

L´abri IMG_2939

L´abri á FáskrúðsfirðiL´abri á FáskrúðsfirðiL´abri, frönsk skúta, Fáskrúðsfjörður

Texti: Albert Eiríksson (albert.eiriksson (hjá) gmail.com)

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.