Askarnir þrifnir

-Ólöf Sigurðardóttir f.1857 í Húnavatnssýslu. askur askar askarnir Hundadagar Eimreiðin 1906 Myndin er af hundinum Tuma og er tekin í Ólafsvík við Straumfjörð á Mýrum, þar sem rannsóknarskipið Pourquoi-Pas? fórst árið 1936 tumi straumfjörður askur askar þrifnir
Hundurinn Tumi í Ólafsvík við Straumfjörð á Mýrum, þar sem rannsóknarskipið Pourquoi-Pas? fórst árið 1936

Askarnir þrifnir

„Allir borðuðu úr öskum. Tvisvar á ári voru þeir þvegnir: úr hangikjötssoðinu fyrir jólin og sumardaginn fyrsta, annars voru hundarnir látnir „verka“ þá eftir hverja máltíð; askurinn settur niður á gólf með ofurlitla matarleif í lögginni, hundarnir sleiktu hann vel og vandlega, eigandinn tók síðan ask sinn upp, blés einu sinni ofan í hann, setti hann upp á hillu, með það var hann góður. Ekkert okkar hefir þó orðið sullaveikt.“
-Ólöf Sigurðardóttir f. 1857 í Húnavatnssýslu. Eimreiðin 1906

Myndin er af hundinum Tuma og er tekin í Ólafsvík við Straumfjörð á Mýrum, þar sem rannsóknarskipið Pourquoi-Pas? fórst árið 1936

ASKARGÖMUL RÁÐPOURQUOI-PAS?ÍSLENSKTHUNDADAGAKONUNGUR

— ASKARNIR ÞRIFNIR —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.