Vegan Brownies

Vegan Brownies eva halldóra guðmundsdóttir eggjalaust mjólkurlaust hallveig kristín eiríksdóttir þorvaldur sigurbjörn helgason eggjalausar skriðuklaustur egilsstaðir
Vegan Brownies

Vegan Brownies

Ó hvað er gaman að „lenda í” kaffiboði. Í listamannaíbúðinni á Skriðuklaustri hittum við Evu Halldóru, Þorvald og Hallveigu sem þar dvelja og sinna listinni af mikilli ástríðu. Í veðurblíðunni á Austurlandi í sumar eru þau búin að afreka fjölmargt og skoða sig um. Eva Halldóra, Þorvaldur og Hallveig héldu okkur dásamlegt kaffiboð. Það er svo ljúft að sitja með skemmtilegu fólki og borða kökur og drekka kaffi. Í þessum brownies eru hvorki egg né mjólkurvörur.

BROWNIESVEGANEGILSSTAÐIRSKRIÐUKLAUSTURBRAUÐTERTURKAFFIMEÐLÆTI

.

Skriðuklaustur listamannaíbúð kaffiboð
Eva Halldóra, Þorvaldur og Hallveig

Vegan Brownies

2 b hveiti
1 b sykur
3/4 b kakóduft
100 g dökkt súkkulaði skorið í bita
2 msk hnetusmjör
1 tsk lyftiduft
1 tsk salt
1 b vatn
1 b góð olía
1 tsk vanilla

Setjið allt í stóra skál og hrærið vel saman. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og hellið deiginu yfir, sléttið úr. Bakið við 25 – 30 mín við 175°

Vegan Brownies kjartan hanna hallveig kristín eiríksdóttir
Þorvaldur, Kjartan, Hanna og Hallveig Kristín
Vegan Brownies
Hallveig, Eva Halldóra, Albert og Bergþór

BROWNIESVEGANEGILSSTAÐIRSKRIÐUKLAUSTURBRAUÐTERTUR

— VEGAN BROWNIES —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.