Pulled pork

Pulled Pork, Kjartan Örn steindórsson slow food ítalía Salat með pulled pork elísa jóhannsdóttir
Pulled pork

Pulled pork

Hugmyndin að slow food kemur frá Ítalíu og mun hafa byrjað árið 1986. Slow food stendur fyrir heilbrigða næringu og njóta matarins meðvitað. Slow food matreiðslan byrjar í undirbúningnum. Kosturinn er góð næring sem er góð fyrir sálina og hjálpar til við jákvæða hugsun og hefur góð áhrif á meltinguna.

KJARTAN ÖRNÍTALÍAGRILLPULLED PORK

.

Kjartan grillmeistari örn
Kjartan Örn við grillið

Kjartan Örn, sá hinn sami og galdraði fram vinsælt lambalæri hér um árið, á heiðurinn af þessu pulled porki. Hann segir er að þetta sé fyrir marga ögrun í grillmennskunni og að þrátt fyrir langan undirbúning sé þetta einföld matreiðsla.

Low & slow þýðir að það er eldað við mjög lágan hita í langan hita. Kjötið verður mjög gott og mjúkt og losnar áreynslulaust í sundur. Það bókstaflega bráðnar í munni.
Annað hvort er hægt að nota svínahnakka eða svínabóg. Ef þið eigið þar til gerða sprautu má líka sprauta kryddleginum líka inn í kjötið.
Vegna langrar matreiðslu getur fitusprengt kjötið rýrnað um 30%.

Polled pork

Pulled pork f. 10 manns

2-3 kg svínahnakki, fitusprengt.

½ tsk chili
2 msk rósmarín
1 msk timían
1 tsk kanill
1 tsk paprikukrydd
2 msk Dijon sinnep
2 msk salvía
1 msk sinnepsfræ
1 msk kóriander
1 msk kúmmin
1 dl viskí
1 dl olía

Blandið öllum kryddum saman við viskí og olíu. Nuddið á kjötið. Vefjið inn í matarfilmu og geymið í ísskáp í 12 -24 tíma.
Grillið við lágan hita, ca 105 – 115 °C óbeinn hiti með grillbakka undir. Grillið í 10-12 tíma. Gott er að fá reykbragð með því að brenna viðarbút með. Hitamælir á að sýna 91° Takið af grillinu og vefjið inn í álpappír og látið bíða í um 30 mín.
Rífið kjötið niður tveimur göfflum.

Salatið
Salat með pulled pork

Salat:

1/2 hvítkálshaus
10 meðalstórar gulrætur
1 stór laukur
2 sellerístangir
400 g majones
200 ml rjómi
4 msk hvítvínsedik
safi úr 1 sítrónu
1 msk hunang
salt og pipar

Rífið niður hvítkál, gulrætur, lauk og sellerý og bandið saman við það mæjónesi, rjóma, ediki, sítrónusafa, hunangi og kryddum. Geymið salatið í nokkrar klst .

Sett saman:
Brauð,
kjöt,
salat
brauð.

Gott er að setja bbq-sósu yfir kjötið á brauðinu.

Pulled pork

 

Pulled Pork
Pulled pork

 

KJARTAN ÖRNÍTALÍAGRILLPULLED PORK

— PULLED PORK —

✨

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.