Apótek restaurant

Apótek restaurant Apótek restaurant Apótek restaurant Apótek restaurant

Apótek restaurant. Notalegur kliður í Apótekinu minnir á bistro í París, létt angan berst af og til úr eldofninum, mikil lofthæð, virðulegir gluggar og flottar innréttingar þar sem hægt er að velja um prívat bása eða ekki, nálægðin við Austurvöll er yndisleg – umvefjandi umhverfi í hjarta borgarinnar. Úr veitingasalnum er hægt að fylgjast með matreiðslumönnunum að störfum því opið er inn í eldhúsið. Allt svo notalegt.

Gengilbeinan okkar var af góðu litháísku bergi brotin, góð á manninn, gerði glögga grein fyrir öllu sem í boði var og stjanaði við okkur á fumlausan og faglegan hátt.

Alúð hennar var í takt við töfrabrögðin sem áttu eftir að berast úr eldhúsinu. Það er svo frábært þegar jafnvægi er fullkomið í eldamennsku, bragð af ýmsu tagi harmonerar saman, eins og í yndislegum hægum kafla úr Mozart konsert og gælir við sál og líkama. Já, þeir kunna sitt fag. Það var ekkert svona: – vá hvað þetta er gott, en þetta er nú ekkert spes, – nei, það var hægt að mæla með öllu.

Það er dálítið í tísku að deila allmörgum smáréttum með félögum sínum. Þannig smakkar maður margt og þarf ekki að sjá eftir því að hafa pantað það sem maður er með, ef hinir eru með eitthvað girnilegra. Hér er m.a. stílað inn á þetta. Við þrír fengum 6 smárétta tilboð og aðalrétt. Það segir mikið um kokkana að við höfðum því miður ekki látið vita af því að einn af okkur væri grænmetisæta, en þeir göldruðu fram grænmetisrétti í bland, sem voru svo frábærir að hver fruma líkamans klappaði af fögnuði. Réttirnir voru bornir fram á tré- eða steinplöttum og voru eins og listaverk að sjá.

Hægt er að fá þrjár tegundir af hvítvíni og þrjár af rauðvíni hússins. Gengilbeinan okkar elskulega mælti með frönsku Sancerre hvítvíni frá Le Château de Sancerre og Frontera rauðvíni frá Chile (Cabernet Sauvignon). Látlaust vín sem passaði bara alveg ágætlega með matnum.
Apótek restaurant - Bakað blómkál

Bakað blómkál

Apótek restaurant - Geitaostur og rauðrófur

Geitaostur og rauðrófur

 Apótek restaurant

Nautatataki með tarragon sósu og pikkluðu fenneli.

 

Apótek restaurant

Grænmetisréttur – brokkólí, sellerírót og sveppa purrée.

 

Apótek restaurant

Fiskur dagsins, Hlýri með sítrónusósu.

Apótek restaurant

Hægeldaður karfi, rauðrófukrem, kryddað smjör, serrano og rauðrófur

 

Apótek restaurant

Ofnbakað grasker með reyktum sveppum og sósu úr reyktum ísbúa.

 

Apótek restaurant

Önd og vaffla. Hægeldað andalæri, karamelliserað epli, belgísk vaffla og maltsósa. Virkar kannski framandi að setja andalæri á vöfflu, en nú heyrðust fyrstu stunurnar og þarf ekki að segja meir.

 

Apótek restaurant
Kolagrilluð nautalund með bökuðu epli, pönnusteiktum ætiþislum, bjór-Hollandaise-, estragonsósu. Nautalundin var mjúk og fín og sósan, þessi með langa nafninu, toppaði svo allt.

Eftirréttir. Í glerborði við innganginn er raðað upp sýnishornum af eftirréttum. Þeir eru engu líkir og skapaðir undir áhrifum evrópskra forvera sinna en með nútímasveiflu eins og segir á eftirréttamatseðlinum sem Axel Þorsteinsson eftirréttameistari á heiðurinn af. Satt best að segja á ég það til að detta út þegar ég fæ góða eftirréttir. Það gerðist yfir gómsætum desertunum á Apótekinu.

Apótek restaurant

Apríkósumascarpone með apríkósuhlaupi, karamellukremi, pralín á Sacherbotni.

Apótek restaurant

Sumarsæla. Kókosmús með mangókremi, súkkulaðimús á kókosmarengsbotni og með hvítsúkkulaði ganache.

Apótek restaurant

Café & Noix. Pistasíu- og heslihnetubotn, með karamellukremi og mjólkursúkkulaðikaffimús

Apótek restaurant

Apótek restaurant Apótek restaurant

albert.eiriksson@gmail.com

Myndir: Bragi Bergþórsson

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.