Veitingastaðurinn Burro – einstakur, líflegur, litríkur og bragðmikill

Veitingastaðurinn Burro – einstakur, líflegur, litríkur og bragðmikill. Þegar komið er á Burro í Veltusundi við Ingólfstorg (þar sem Einar Ben var áður) mætir manni suður-amerísk litadýrð í teppum, áklæðum, myndefni og vali á veggjalitum. Þetta ásamt músíkinni gera stemninguna glaðlega, ekki síst þar sem staðurinn er fjölsóttur, þetta er hlýlegt, heimilislegt og „áfengt”. Rauðvín hússins var afbragð, Emiliana Coyam (4,2 á Vivino) sem passaði sérlega vel með matnum, en þó er þetta ekki týpíski rómó rauðvínsstaðurinn, heldur ekki síður á bjór-rustico línunni, ef maður vill. Hér er mjög líflegt og staðurinn svo að segja fullsetinn mánudagskvöldið sem við vorum.

Suður-amerísk matreiðsla: Hér fást suður-amerískir smáréttir allt yfir í argentískar alvöru nautasteikur. Sérstaka athygli vakti að um þriðjungur matseðilisins er hugsaður fyrir grænkera – alveg til fyrirmyndar.

Jalapeno salsa, túnfiskur, ponzu. Túnfiskurinn var súr og kexið ofan á gerði mjög fína áferð.

Spergilkál, sesamfræ og engifer

Pescado taco (Rauðsprettu taco), greip, appelsínur, laxahrogn, smjörsósa yfir koriander taco skel.

Grænmetis cevice, brokkolí, amarillo og sætar kart.

Jarðskokkar nokkuð sterkur réttur

Þorskur, rauðkál sterkt og pipar, óvenjuleg samsetning, hárrétt eldaður þorskur, bragðmikið án þess að vera of sterkt, rífur nett í.

Tofu kjúklingur með veganmayo, taco skel.

Sellerírót steikt önd, mole sósa svaka góð,

Reykt sellerírót, laukmauk, sinnepsfræ, góð mild og góð barbecue sósa, passlega stökk

Sítrónusorbet, ávextir og vegankex

Avocado m. condensed milk. jógúrt ís gerir ferskt og dolce di leche (sem er soðin niður condensed mjólk v. 85°C.)

Burro Tapas + steak. Mið- og suðuramerískur smáréttastaður með frábærum Latin steikum. Bragðgóður, litfagur matur sem fer vel í munni og maga. Líflegur Burro öðruvísi en allir aðrir staðir, stórfín viðbót við fyrirmyndar veitingastaðaflóru landsins með ljúfa og góða þjónustu.

Á efri hæð er sér kokteilabar; Pablo Disco bar. Það er mikil gróska í fordrykkjum um þessar mundir og barþjónar óhræddir að prófa nýja drykki og blanda saman ólíkum hráefnum. Fordrykkir sem við fengum voru feikilega hressandi og ferskir og hver öðrum betri. Athygli vakti óáfengur Black Russian, eiginlega sælgæti. Örugglega einn besti kokteilbar Íslands og fólk getur alltaf farið þangað í drykk þó það sé ekki að fara á veitingastaðinn. Happy hour alla daga uppi milli kl 16 – 18

 

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.