Marokkósk appelsínukaka með apríkósum – algjörlega trufluð kaka

Marokkósk appelsínukaka með apríkósum - marokkó algjörlega trufluð kaka björk jónsdóttir söngkona appelsínur apríkósur terta kaffimeðlæti
Marokkósk appelsínukaka með apríkósum – algjörlega trufluð kaka

Marokkósk appelsínukaka með apríkósum

Björk Jónsdóttir er af mörgum kunn fyrir tertur sínar og annað kaffimeðlæti. Hún hefur oft komið við sögu á þessu bloggi, hefur oftar en ekki átt uppskriftir á árlegu listunum yfir vinsælustu uppskriftirnar. Má þar nefna Kókosbolludraum og Sítrónuböku með ferskum berjum

Eins og annað sem frá Björk kemur er þessi appelsínukaka mjög góð. Blandan af möndlumjöli, apríkósum, pistasíum og appelsínum er himnesk.

BJÖRK JÓNSDFÖSTUDAGSKAFFIMAROKKÓ — APPELSÍNUR  LISTAHÁSKÓLINN

.

Marokkósk appelsínukaka með apríkósum - algjörlega trufluð kaka
Björk Jónsdóttir söngkona

Marokkósk appelsínukaka með apríkósum

2 stórar appelsínur án safans

2 dl apríkósur

1/2 búnt fersk minta

6 egg

250g sykur

1L vatn (soðið með appelsínunum)

275g möndlur(mixaðar í mjöl) eða möndlumjöl

1 tsk lyftiduft

2 msk pistasíuhnetur

1 springform með lausum botni 22cm

Þeytið egg og sykur vel saman uns létt og ljóst, blandið möndlumjöli, lyftidufti og pistacíuhnetum útí eggjamassannn

Kreistið safann úr appelsínunum og sjóðið þær við hægan hita í 1lítra vatns í 1 klst. Kælið. Setjið á disk, skerið í litla bita með börkinn utanum. Saxið apríkósurnar gróft, fínskerið mintuna, þessu er blandað saman og sett í mixer og mixað, ásamt appelsínumassanum og hrærið loks saman við deigið.

Bakið við 200°C í ca 1 klt. Kælt, Safinn af appelsínunum ásamt smá sykri soðið saman, pikkað með gafli í kökuna og safanaum helt yfir, meta eftir þörfum hve mikið af safanum fer yfir. Flórsykur stráð yfir í lokinn og e.t.v. raspaður börkur af einni appelsínu.

#2017Gestabloggari6/52BJÖRK JÓNSMAROKKÓ

Albert og Björk
Albert og Björk

.

BJÖRK JÓNSDFÖSTUDAGSKAFFIMAROKKÓ — APPELSÍNUR  LISTAHÁSKÓLINN

— MAROKKÓSK APPELSÍNUKAKA —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.