Grænn aspas vafinn í hráskinku með Hollandaise sósu

Grænn aspas vafinn í hráskinku með Hollandaise sósu Angantýr Einarsson og Þórunn Ragnarsdóttir kona hans.
Grænn aspas vafinn í hráskinku með Hollandaise sósu

Grænn aspas vafinn í hráskinku með Hollandaise sósu

Vinur okkar hann Angantýr ákvað að útbúa glæsilegan og bragðgóðan forrétt” segir Svanhvít Valgeirsdóttir myndlistarkona og förðunarmeistari sem býr og starfar í Brussel. Þau hjónin héldu matarboð fyrir nokkra vini sína. Fyrir utan aspasinn var boðið upp á Svanskjúkling í aðalrétt og í desert var einfaldur fljótlegur eftirréttur.

ASPASHOLLANDAISESVANHVÍT VALGEIRS #2017Gestabloggari8/52

.

Hér má sjá allar uppskriftirnar úr matarboðinu og ásamt myndum

.

Angantýr Einarsson og Þórunn Ragnarsdóttir kona hans.

Grænn aspas vafinn í hráskinku með Hollandaise sósu (fyrir fjóra)

12 stk stór grænn ferskur aspas

8 sneiðar parmaskinka (hráskinka)

rifinn parmesan ostur

svartur malaður pipar

ólífuolía

Hollandaise-sósa

5 egg

250 g smjör

2 msk vatn

sítrónusafi

salt, hvítur pipar, cayenne pipar

Brjótið eggin og setjið í ílát sem þolir hita. Pískið vatninu saman við. Setjið nú ílátið með eggjunum í vatnsbað og hitið varlega. Pískið allan tímann og fylgist vel með hitanum. Vatnið undir á að hitna upp að suðu en alls ekki að bullsjóða. Gott er að hafa ekki mjög mikið vatn í pottinum undir. Það er hægt að fylgjast með hitanum með því að stinga puttanum ofan í eggjablönduna – hún á ekki að vera það heit að það sé ekki hægt. Smám saman fara eggin að þykkna. Pískið áfram og bætið smjörinu smám saman út í. Það er ágætt að hafa það ekki of kalt og vera búinn að skera í teninga. Pískið á meðan smjörið bráðnar. Þegar allt smjör er komið saman við þarf að halda áfram að píska þar til að sósan þykknar. Það er vatn í smjörinu og eftir því sem að það gufar upp og eggin hitna þykknar sósan.
Þegar sósan er að verða þokkalega þykk er sítrónusafanum bætt út í. Það þarf safa úr allt að hálfri sítrónu en ekki setja allan í einu. Setjið hann smám saman og bragðið á milli. Saltið sósuna og kryddið með smá hvitum pipar eða cayennepip¬ar.

Sjóðið aspasinn í 8-10 mínútur, að því loknu takið aspasinn úr vatninu og leggið þrjá saman ofan á tvær hráskinku sneiðar, hellið smá ólífuolíu yfir og piprið. Vefjið hráskinkunni utan um aspasinn. Grillið í 4-5 mín.

Setjið eina kippu á hvern forréttadisk, stráið parmesan osti yfir og hollandaise sósu yfir.

Svanhvít Valgeirsdóttir myndlistarkona og förðunarmeistari

ASPASHOLLANDAISESVANHVÍT VALGEIRS #2017Gestabloggari8/52

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.