Bolludagsbollur og vatnsdeigsbollur úr Nýju matreiðslubókinni

Berlínarbollur bolludagur bolludagsbollur Bolludagsbollur - Vatnsdeigsbollur Nýja matreiðslubókin kom út árið 1954 Halldóra Sólveig
Bolludagsbollur eru góðar

Bolludagsbollur – Vatnsdeigsbollur

Nýja matreiðslubókin kom út árið 1954 og var til á fjölmörgum heimilum hér á landi. Í bókinni, sem er eftir Halldóru Eggertsdóttur og Sólveigu Benediktsdóttur, eru þrjár bolludagsuppskriftir. Í lesendabréfi sem birtist í Morgunblaðinu sama ár og bókin kom út stendur m.a.: Eg vil svo benda á, að þessi matreiðslubók er einhver sú hagnýtasta og fjölbreyttasta, sem samin hefur verið á íslenzku, þar sem finna má leiðbeiningar um matargerð, sem eiga við, hvar sem við búum á landinu. Á Nýja matreiðslubókin því erindi til allra þeirra Íslendinga, sem við matargerð fást. Enginn húsbóndi mun sjá eftir að stuðla að því, að þessi bók verði til á heimili hans.

– BOLLUDAGUR — BOLLUR – SPRENGIDAGURNÝJA MATREIÐSLUBÓKIN

.

Nýja Matreiðslubókin 1954 Sólveig Halldóra Benediktsdóttir Eggertsdóttir
Nýja matreiðslubókinni eftir Halldóru Eggertsdóttur og Sólveigu Benediktsdóttur

Sígildar bolludagsbollur

200 g hveiti

125 g smjörlíki

5 tsk. þurrger eða 50 g pressuger

1 msk. sykur

1 egg

1 dl vatn

Smjörlíkið er mulið í hveitið og sykurinn og síðan er gerinu blandað saman við ef um þurrger er að ræða. Þeytið egg og vatn saman og vætið deigið með því. Má líka hræra í hrærivél. Þá er vatn og egg sett í hrærivél og þurrefnum blandað saman við.

Setjið með skeið á plötu og látið lyfta sér við stofuhita í hálftíma. Bakið við 200°C í 10­-15 mínútur allt eftir því hvernig ofn er um að ræða. Þessi uppskrift dugar í 15­-20 bollur. Ingibjörg segir að sumir bæti við rúsínum og súkkulaði ef ekki á að bera bollurnar fram með rjóma. Sjálf segist hún alltaf bera þær fram með sultu og rjóma.

Vatnsdeigsbollur

125 g smjörlíki

2 dl vatn

125 g hveiti

4 egg

Smjörlíki og vatn er soðið saman og hveiti er síðan hrært út í þangað til deigið er samfellt og þykkt. Takið pott af plötu og kælið deigið svolítið. Deigið er sett í hrærivélarskál og eitt og eitt egg síðan hrært saman við. Ingibjörg segist meta það hverju sinni hvort eggin þurfa að vera fjögur eða þrjú. Deigið á ekki að vera of þunnt og er síðan sett á plötu með skeið og hafa þarf gott bil á milli. Deigið dugar í 20­-24 kökur. Bollurnar eru bakaðar í miðjum ofni við 180°C í um það bil 20 mínútur. Munið að opna ekki ofninn meðan á bakstri stendur. Ingibjörg segir að eggin og vatnið lyfti bollunum sem verða holar að innan. Þær þurfa að vera vel bakaðar áður en þær eru teknar út úr ofninum því annars er hætta á að þær falli saman. Bollurnar mega heldur ekki vera of bakaðar því þá verða þær of þurrar.

Ingibjörg segist alltaf bera bollurnar fram með sultu og rjóma og hún bræðir síðan súkkulaði með svolítilli olíu og smyr ofan á bollurnar.

Sumir hafa búið til matarlímsbúðing á milli og einhverjir hafa t.d. karamellubúðing, sultu og rjóma á milli.

Berlínarbollur

40 g smjörlíki

30 g sykur

1 egg

1 dl mjólk

2 tsk. þurrger

250 g hveiti

Palmínfeiti

Ingibjörg hrærir smjörlíki og sykur saman í hrærivél og setur síðan eggið saman við. Að þessu búnu fer helmingur af hveitinu og gerið út í deigið og mjólkin. Deigið er tekið úr hrærivélinni og afgangurinn af hveitinu hnoðaður saman við.

Deiginu er skipt í tvær kökur og önnur er flött út og með glasi eru mótaðar kringlóttar kökur. Hálf teskeið af sultu er sett á hverja köku. Hinn helmingur deigsins er flattur út og lagður ofan á. Kökur mótaðar undan glasi ofan á hinar og þá á sultan að vera á milli. Límið brúnir vel saman með gaffli. Látið bollurnar lyfta sér í 10-15 mínútur. Steikið eins og kleinur í heitri fitu og oftast er kökunum velt upp úr sykri á eftir. Sumir strá á þær flórsykri eða setja á þær glassúr.

Nýja Matreiðslubókin 1954 Sólveig Halldóra Benediktsdóttir Eggertsdóttir
Nýja matreiðslubókinni eftir Halldóru Eggertsdóttur og Sólveigu Benediktsdóttur

– BOLLUDAGUR — BOLLUR – SPRENGIDAGURNÝJA MATREIÐSLUBÓKIN

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.