Fyrirlestrar um mat, borðsiði og kurteisi

Fyrirlestrar um mat, borðsiði og kurteisi etiquette mannasiðir borðsiðir hvernig á að haga sér Albert

Fyrirlestrar um mat, borðsiði og kurteisi. Frá upphafi síðasta árs hafa á blogginu birst færslur um borðsiði, kurteisi og annað slíkt. Við vinnslu þessara pistla naut ég velvildar fjölmargra sem lásu yfir og gáfu góð ráð. Sjálfur hef ég lært heil óslöp.

Síðustu mánuði hef ég farið víða og haldið, mér til mikillar ánægju, fyrirlestra um mat, áhrif matar, borðsiði og kurteisi.

Myndirnar eru teknar á fyrirlestri hjá Starfsmannafélagi Hagstofunnar, þar voru líflegar umræður, áhugasamir þátttakendur og gaman.

Netfangið er albert.eiriksson (hjá) gmail.com og síminn 864 27 28

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.