Kaffisopinn indæll er – samt ekki með Export óþverranum

Kaffisopinn indæll er - samt ekki með kaffispillir uppáhellingur uppáhelling kinnalitur rauði liturinn rauður kinnalitur Export óþverranum kaffibætir kaffi Rannveig Kristjánsdóttir þjóðviljinn
Export kaffibætir

Kaffisopinn indæll er

Það er kunnara en frá þurfi að segja að mikill vandi er að hella upp á gott kaffi. Þunnt kaffi þykir ekki vera það besta og í gamla daga voru höfð ýmis orð um þunnt kaffi og ekki öll sem fallegust, til dæmis: englapiss, nærbuxnavatn, vinnukonuvatn, kaffiblávatn, meyjarhland, ærpiss, steinbítshland, skjávatn, návatn, náhland eða seinna vatn af sokkum. Sterkt kaffi var kallað: rótsterkt, útsterkt, bleksterkt eða skjólgóður sopi. Bjartur í Sumarhúsum taldi kaffi ekki drekkandi nema hægt væri að tjarga upp úr því hrúta.

Kaffibætir var fluttur inn frá því um 1870 og þótti sjálfsagt að nota hann til að drýgja kaffið. Kaffibætir var gerður úr rótum kaffifífils eða sikoría (Cichorium intybus) sem er fjölær matjurt sem er ræktuð bæði vegna blaðanna, sem eru notuð í salöt, og rótarinnar, sem er ristuð og notuð sem kaffibætir.  Kaffi án kaffibætis var gjarnan nefnt baunakaffi. Ekki líkaði öllum kaffibætirinn þó vinsæll væri fram undir miðja síðustu öld. Í bréfi sem Fjallkonan birti árið 1884 frá „Merkum bónda í sveit” segir: …og er lítil bót að hinni óhóflegu kaffidrykkju, einkum þar sem kaffið er víðast að meira eða minna leyti búið til úr kaffibæti, eða réttara sagt, kaffispilli”

„Ég get ekki nema af sérstakri kurteisi drukkið kaffi með því bragðvonda og heilsuspillandi skítbrasi samanvið, sem í auglýsíngum er nefnt „kaffibætir”, en alþýða nefnir ýmist rót, export eða sikkorí” segir Halldór Laxness í Dagleið á fjöllum.

O.Johnson & Kaaber flutti inn Ludvig David kaffibætir sem einhverra hluta vegna var ávallt kallaður Export. Kaffibætirinn var einnig nefndur rót og þannig er tilkomið að rætt var um rótsterkt kaffi. Í innflutningshöftunum í kreppunni miklu upp úr 1930 var farið að vinna Export kaffibæti hér á landi. Kaffibætirninn var í plötum og yfirleitt var notast við fjórðung úr plötu eða hálfa í hvern uppáhelling.

Rauður kinnalitur. Íslensk fljóð fundu það fljótlega út að rauðu pappírsumbúðirnar utan um staukana gáfu lit og með því að nudda þeim létt við kinn, mátti fá þennan fína kinnalit. Á tímum hafta og skömmtunar var þetta kærkomin búbót fyrir heimasætur sem vildu fá hraustlegra útlit!

KAFFIBÆTIRÍSLENSKTKAFFIVÖFFLURSÓLARPÖNNUKÖKUR

.

O.Johnson & Kaaber flutti inn Ludvig David rót sikkorí kaffirót kaffibætir Export kaffisopinn indæll er eykur fjör og skapið kætir langbezt jafnan líkar mér ludvig david kaffibætir
Kaffisopinn indæll er

Rannveig Kristjánsdóttir skrifaði grein í Þjóðviljann árið 1944 og er ekki ánægð með kaffibætinn.

Hvers vegna þurfa Íslendingar export? Nú er hafið harmakvein um bæ og byggð. Skortur er á vöru þeirri sem kaffibætir nefnist á íslenzku máli, en víðast annars staðar myndi sennilega hljóta nafnið kaffispillir. Kaffibætisleysi landsmanna er sárara en óánægjan yfir smjör- og ávaxtaleysinu og er þó tvennu ólíku saman að jafna. Annars vegar bleksvartur, súrrammur, næringarsnauður óþverri, og hinsvegar heilsuverndandi fæðutegundir fullar fjörefna. ….. Í öllum bænum setjið ekki soju eða annan óþverra í kaffið, heldur búið þið til heilnæmst baunakaffi. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur, segja menn um kaffibætinn. Enginn veit hvað er að eiga hlut fyrr en hreppt hefur, munið þið segja þegar þið byrjið að smakka baunakaffið.

kaffibætir kaffi Rannveig Kristjánsdóttir þjóðviljinn
Ekta David kaffibætir

☕️

KAFFIBÆTIRÍSLENSKTKAFFIVÖFFLURSÓLARPÖNNUKÖKUR

— KAFFISOPINN INDÆLL ER —

☕️

SaveSave

SaveSave

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.