Eyjólfur hinn elskulegi býður heim

Eyjólfur Eyjólfsson, Þormóður gamli á Eyri, Gulrótaterta eyvi Gulrótarkaka Aldísar frænku SIGLUFJÖRÐUR
Eyjólfur Eyjólfsson

Eyjólfur hinn elskulegi býður heim

Eyjólfur vinur okkar Eyjólfsson er í sumar að vinna á Þjóðlagasetrinu á Siglufirði. Ef vel stendur á þá spilar hann á langspil fyrir gesti og á sérstökum kvöldstundum setursins kveður hann jafnvel og syngur. Eyjólfur er hvers manns hugljúfi og heillar gesti upp úr skónum með leiftrandi og ástríðufullri frásögn um stórmerkilegt framlag Bjarna Þorsteinssonar til íslensks tónlistararfs. Á ferð okkar til Siglufjarðar bauð hann okkur í heimsókn að lokinni eftirminnilegri heimsókn á Þjóðlagasetrið. Siglufjörður rokkar

#2017Gestabloggari29/52SIGLUFJÖRÐUREYJÓLFURGULRÓTATERTUR

.

Ostabrúskettur Þormóðs gamla á Eyri

6 þunnt skornar súrdeigsbrauðsneiðar

1 kúrbítur

3 tómatar

1 laukur

2 hvítlauksrif

Herbes de Provence eða oregano

Salt og pipar

2 msk ólífuolía

Rifinn ostur

Skerið kúrbítinn í sneiðar og steikið á pönnu þangað til sneiðarnar eru vel brúnar og mjúkar og látið kólna áður en þær eru svo skornar til helminga. Blandið þeim svo saman við smátt skorna tómatana. Smátt skorinn laukurinn er steiktur á pönnu og blandað saman við kúrbíts- og tómatbitana. Merjið hvítlauksrifin og setjið hrá út í. Kryddið með herbes de Provence eða oregano eftir smekk auk salts og pipars. Bætið ólíufuolíu saman við og blandað öllu vel saman. Loks er blöndunni skellt jafnt ofan á súrdeigsbrauðssneiðarnar og rifnum osti dreift yfir.

 

Siglfirskt sumarsalat

Siglfirskt sumarsalat

1/4 hvítkálshaus

1/2 rauðrófa

2 gulrætur

1/2 sítróna

2-3 msk jómfrúarólífuolía

salt og pipar

minta

Rífið hvítkál, rauðrófu og gulrætur með rifjárni og setjið í myndarlega skál. Rífið einnig börk af hálfri sítrónu og setjið útí. Bætið olíunni út í ásamt safa úr hálfri sítrónu. Blandið öllu vel saman og kryddið með salti og pipar eftir smekk. Stráið grófskornum myntulaufum yfir salatið sem bæði gefur ferskt bragð og fallegan lit.

 

Gulrótarkaka Aldísar frænku
Eyjólfur sker gulrótarkaka Aldísar frænku

Gefum Eyjólfi orðið: Sumar kökur eru betri en aðrar. Gulrótarkaka móðursystur minnar er sú kaka sem ég kannski held mest upp á – ef til vill vegna þess að hún er í senn hátíðleg og ósköp hversdagsleg. Þó svo að móðir mín sé þekkt fyrir íburðarmiklar stríðstertur hef ég yfirleitt hneigst meira til kökubaksturs eins og ég kynntist í sveit sem strákur. Þá á ég að sjálfsögðu ekki við sunnudagshnallþórurnar heldur hinar stóísku og yfirveguðu jóla- og marmakökur sem gengu í svo til heilagt hjónaband með ógerilsneyddri kúamjólkinni.

Gulrótarkaka Aldísar frænku virðist því búa yfir búsældarlegri rómantík og borgaralegum hátíðleika – en einnig er yfir henni heimsborgaralegur blær. Hvort heldur sem gulrótarkakan á uppruna sinn að rekja vestur yfir haf til Bandaríkjanna eða til annarra heimsálfa fær krydd-dúettinn engifer og kanill bragðlaukana til að ferðast langt út fyrir landsteinana.

Gulrótarkaka Aldísar frænku

5 dl hveiti

2 tsk lyfitduft

1/2 tsk matarsóti

1 tsk salt

1 tsk kanill

3-4 dl sykur

1 dl matarolía

4 egg

5 dl rifnar gulrætur

1 tsk engiferduft

1/2 kurlaður ananas (má sleppa) – muna að hella safa af.

Hrærið öllu saman og bakið í springformi við 180°C í u.þ.b. 50 mínútur neðarlega / neðst í ofni.

Krem:

400 gr rjómaostur

3-4 msk flórsykur

Rifinn börkur af hálfri sítrónu

Þeytið rjómaostinn vel í hrærivél með flórsykrinum. Rífið börk með rifjárni af hálfri sítrónu og blandið vel saman við. Hægt er að skera kökuna til helminga og setja krem bæði á milli og ofan á kökuna eða halda henni heillri og setja allt kremið ofan á eða yfir alla kökuna.

Eyjólfur Eyjólfsson

#2017Gestabloggari29/52SIGLUFJÖRÐUREYJÓLFURGULRÓTATERTUR

— EYJÓLFUR HINN ELSKULEGI BÝÐUR HEIM —

SaveSave

SaveSave

SaveSave

SaveSave

SaveSave

SaveSave

SaveSave

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.