Kakan sem klikkar ekki – einföld, fljótleg og gómsæt

Kakan sem klikkar ekki Sólveig Eiríksdóttir Elín Lilja fljótleg einföld terta skúffuKaka sem klikkar ekki – einföld, fljótleg og gómsæt Fremst á myndinni er Elín Lilja sem aðstoðaði Sólveigu ömmusystur sína við baksturinn. Aðrir á myndinni: Albert, Vilborg, Einar, Sólveig, Hulda og Páll
Kakan sem klikkar ekki – einföld, fljótleg og gómsæt

Kakan sem klikkar ekki

Já, það er nú það þegar eru annasamir dagar og maður veit að gesta er von og vill gera vel við þá og veit að tími getur verið af skornum skammti. Samvera með góðu fólki er nærandi og mannbætandi.
Best er að geta lagt á borð einum eða jafnvel tveimur dögum áður því það fer ekki neitt og það sparar manni mikinn tíma. Sólveig systir mín bauð í kvöldkaffi og var eldsnögg að útbúa kaffimeðlætið. „Það er skemmtilegt að fá fólk heim og njóta veitinga saman, spjalla og hlæja og muna eftir að njóta líðandi stundar. Hér er einfalt, fljótlegt, gómsætt kaffimeðlæti. Þessi kaka klikkar aldrei og ef við erum fá þá skipti ég pakkanum í tvennt, helminga vatn og olíu en nota 2 egg – Þannig fæ ég 2 kökur úr einum pakka og finnst það ágætis útkoma.”

#2017Gestabloggari 31/52SÚKKULAÐITERTURSÓLVEIG EIRÍKS

.

Kakan sem klikkar ekki – einföld, fljótleg og gómsæt Elín Lilja, Albert Vilborg Einar Sólveig Hulda Steinsdóttir Páll Bergþórsson
Fremst á myndinni er Elín Lilja sem aðstoðaði Sólveigu ömmusystur sína við baksturinn. Aðrir á myndinni: Albert, Vilborg, Einar, Sólveig, Hulda og Páll
Ástæðan fyrir bleika litnum á kreminu eru endurkast frá bol Sólveigar

Kakan sem klikkar ekki

1 pk Betty Crocker eða Bónus djöflatertuduft

1/2 epli rifið

1 stór gulrót rifin

1 dl gróft saxað Sirius konsum súkkulaði

1 ds Betty Crocker krem

Kókos, lakkrískurl, bláber, jarðarber, Nóa kropp eða karamellukurl (eða hvað sem er) til skrauts.

Hrærið kökuna eftir leiðbeiningum á pakkanum en dragið úr vökvanum um ca 1/2 dl. Bætið við epli og gulrót, blandið vel saman og setjið deigið í smurt form. Stráið súkkulaðinu yfir. Þá sígur það örlítið ofan í kökuna og bætir hana enn frekar.
Bakið samkvæmt leiðbeiningum. Þegar kakan er bökuð að láta kólna í nokkra stund áður en kremið er sett á.
Skreytið með kókos, lakkrískurli, bláberjum, jarðarberjum, Nóa kroppi eða karamellukurli. Það er líka allt í lagi að hafa bara kremið eintómt

Með kökunni er líka upplagt að þeyta rjóma eða bera fram ís, allt eftir því hvað er til og hvað mann langar í.

Kakan sem klikkar ekki – einföld, fljótleg og gómsæt

.

#2017Gestabloggari 31/52SÚKKULAÐITERTURSÓLVEIG EIRÍKS

— KAKAN SEM KLIKKAR EKKI —

,

SaveSave

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.