Sérvéttumenning á mjög lágu stigi

Appelsínugosdrykkurinn Valash Akureyri sana gosdrykkur Sérvéttumenning á mjög lágu stigi guðrún á símonar símonardóttir munnþurrkur servíettur etiquette borðsiðir kurteisi sleikja fingur
Sérvéttumenning á mjög lágu stigi

Guðrún Á. Símonar vissi hvað hún söng, henni er ekki skemmt eins og sjá má í meðfylgjandi grein sem hún fékk birta í Morgunblaðinu í janúar 1968.

„Mig langar til að gefa frú Sigríði mjög einfalt en gott ráð hvernig ekki á að fá bletti í barnafatnað. Ég á dreng, sem er 6 ára, hann drakk Valash yfir jólahátíðina, – engir blettir, ekkert gult í kringum munninn. Mitt einfalda, en góða ráð er, kennið börnum yðar að nota sérvéttur…
Því miður er sérvéttumenning á mjög lágu stigi hérna.
Hérna láta börnin ser nægja að sleikja fingurna eða þurrka sér í fatnaðinn”

Virðingarfyllst
Guðrún Á. Símonar

Á hálfri öld hefur fjölmargt breyst bæði hvað varðar munnþurkur og borðsiði.

Appelsínugosdrykkurinn Valash

.

— SERVÍETTUMENNING Á MJÖG LÁGU STIGI —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.