Pitsusósa – Pizza pronto

Pitsa pizza pitsu pronto sósa á pitsu pitsuprontó pronto pitsa tómatar pitsusósa pitsasósa pizzusósa
Pitsa tilbúin í ofninn

Pitsusósa – Pizza pronto

Það er nú ekki svo mikið mál að útbúa pitsusósu. Þegar pitsur urðu vinsælar hér fyrst var hægt að kaupa pitsusósu sem hét Pizza Pronto – óskaplega þægilegt og mig minnir að það hafi líka bragðast ágætlega. Kannski fæst Pizza Pronto ennþá. Víða eru pitsusósur enn kallaðar Pissa Prontó, við skulum ekki hætta því.

🍕

PITSURPITSUDEIGHVÍTLAUKSOLÍAMARGHERITApitsuofninn

🍕

Pitsusósa – Pizza pronto pitsa sósa
Hráefnið sem þarf í góða pitsusósu

 

Pitsusósa – Pizza pronto

1 laukur
4 msk olía
1-2 hvítlauksrif, saxað smátt
1 ds tómatar í dós, saxaðir smátt
1 msk tómatpure
1 tsk oreganó
1 tsk basil
salt og pipar
smá chili
2 msk rauðvín (má sleppa)

Saxið lauk og léttsteikið í olíunni í nokkrar mínútur við lágan hita. Bætið við hvítlauk, tómatpure, oreganó, basil, chili, salti og pipar. Hellið rauðvíninu saman við og sjóðið í ca. 10 mín.

PITSUDEIG

Pitsa heimabökuð

🍕

PITSURPITSUDEIGHVÍTLAUKSOLÍAMARGHERITApitsuofninn

— PITSUSÓSA —

🇮🇹

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.