Matarborgin Lissabon

kristín finnbogadóttir Matarborgin Lissabon Portugal portvin krista karólína kolbrún kolbeinsdóttir Júlía Karín Kjartansdóttir Kolbrún Kolbeinsdóttir stefán torfi magnússon hildigunnur magnúsdóttir elsa lyng magnúsdóttir púrtvín Lissabon, ólafur guðlaugsson guðlaugur bergmann flissabon, Ritz hotel, matarborgin Portugal Herdís finnbogadóttir Ari ólafsson Ragnar ólafsson Kjartan smári portúgalskur matur lisboa matur í lissabon veitingastaðir pastel de nata
Borðað á The Four seasons á Ritz hótelinu

Matarborgin Lissabon

Um miðja 18.öld gekk gríðarstór flóðbylgja yfir Lissabon eftir öflugan jarðskjálfta. Flóðið hreif með sér hús og annað í borginni. Eina hverfið sem stóð af sér hörmungarnar var Alfama hverfið sem stendur á allmikilli hæð. Efst á hæðinni kastali mikill og þaðan er gott útsýni yfir alla borgina. 

 FLEIRI MATARBORGIR — PORTÚGALSALTFISKURARI ÓLAFSSON

.

Matarborgin Lissabon saltfiskur portúgalskur fiskur
Saltfiskur

Maturinn í Lissabon er bæði góður og fjölbreyttur. Það er kunnara en frá þurfi að segja að Portúgalir eru einna frægastir fyrir saltfiskrétti sína og sardínur. Sagt er að matur Portúgla sé undir sterkum áhrifum Miðjarðarhafsins. Þeir taka sér góðan tíma til að matast. Hádegisverður stendur gjarnan yfir í rúman klukkutíma og kvölmaturinn, sem oftast er um kl 8, stendur mun lengur yfir.  Svína- og nautakjöt er algengasta kjötið á diskum Portúgala.

Portúgalir eru stoltir af tedrykkju sinni, amk á öldum áður. Þeir segja að tedrykkja hafi orðið vinsæl á Englandi á 17.öld eftir að portúgalska prinsessan Katarína af Braganza giftist Karli konungi 2.
Katarína af Braganza

Portúgalir eru stoltir af tedrykkju sinni, amk á öldum áður. Þeir segja að tedrykkja hafi orðið vinsæl á Englandi á 17.öld eftir að portúgalska prinsessan Katarína af Braganza giftist Karli konungi 2.

Time out og LX factory matarmarkaður
Time out og LX factory

Time out og LX factory.

Í tveimur stórum skemmum í Lissabon eru litlir veitingastaðir með stóru opnu almenningsrými í miðjunni þar sem fólk matast við langborð. Það er vel þess virði að heimsækja þá báða og bragða á dásemdar mat heimamanna.

Saltfiskur
Saltfiskur á Colina veitingastaðnum

Saltfiskur. Sagt er í Portugal að til séu fleiri en 365 aðferðir til að elda saltfisk. Á Colina veitingastaðnum eru á matseðlinum margir portúgalskir saltfiskréttir. Þeir sem við prófuðum smökkuðust allir vel.

Pastel de nata smjörkökur vanillukrem
Pastel de nata er lítil smjödeigsskál með eggjavanillubúðingi.

Pastel de nata er lítil smjödeigsskál með eggjavanillubúðingi. Það er eiginlega ekki hægt að fara til Lissabon nema fá sér einu sinni á dag Pastel de nata ef ekki tvisvar. Oftar en ekki er á afgreiðsluborðinu staukur með kanil og annar með flórsykri. Hefðin er að strá öðru hvoru yfir eða báðu.

Bolinhos de Bachalhau
Bolinhos de Bachalhau

Bolinhos de Bachalhau. Víða á götuhornum má fá djúpsteiktar saltfiskbollur sem kallaðar eru Bolinhos de Bachalhau, þær eru samt ílangar. Þær eru gerðar úr soðnum saltfiski, soðnum kartöflum, lauk, hvítlauk, eggjum og steinselju.

Arroz Doce eftirréttur
Arroz Doce er vinsæll eftirréttur, víða hafður á jólum

Arroz Doce er vinsæll eftirréttur, víða hafður á jólum. Hann minnir á kaldan hrísgrjónagraut. Sítrónubörkur er soðinn með grjónunum. Yfir hann er stráð kanil sem oftar en ekki myndar munstur. Pão doce eru sætar bollur þær eru stundum bornar fram með Arroz Doce eftirréttinum.

Fogo de Chão kjötstaður kjöt grill steikur
Hópurinn á brasilískum kjötstað Fogo de Chão

Fogo de Chão. Hjá fyrrum nýlenduherrum eins og portúgölum gætir eðlilega áhrifa víða að. Á brasilískum kjötstað Fogo de Chão, er kjötið skorið ofan í gesti af teinum alls sextán tegundir. Þar geta gestir borðað eins mikið og hver getur í sig látið. Eftirrétturnn var heill grillaður ananas á teini með smá kanil, skorinn niður beint á diska gestanna, bragðaðist einstaklega vel.

Four seasons
Á The Four seasons á Ritz hótelinu

The Four seasons á Ritz hótelinu. Það er eftirminnilegt að snæða á Ritz hótelinu. Mótttakan og veitingasalurinn er einstaklega fallegur og vel þess virði að skoða. Hluti af hópnum sem fór á Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva fór saman út að borða og átti ógleymanlegt kvöld. — THE FOUR SEASONS

Panorama, restaurant & bar
Panorama, restaurant & bar

Panorama, restaurant & bar. Það er gaman að slá tvær flugur í einu höggi, velja góðan veitingastað með útsýni yfir borgina. Því miður var upppantað þegar við ætluðum á Panorama en góð vinkona okkar mælti sérstaklega með þessum stað.

Amorino
Amorino ísbúðirnar eru víða í Lissabon

Amorino ísbúðirnar. Eftir óformlega könnun reyndist besti ísinn á Amorino. Þar er afgreiðslufólkið sérhæft í að útbúa blóm úr ísnum og setja ofan á makkarónuköku. — AMORINO

 

🇵🇹

 FLEIRI MATARBORGIR — PORTÚGALSALTFISKURARI ÓLAFSSON

— MATARBORGIN LISSABON —

🇵🇹

SaveSave

SaveSave

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.