Rabarbarapæ með rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti

Rabarbarapæ Albert með rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti Þorgrímsstaðir
Rabarbarapæ með rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti

Rabarbarapæ með rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti. Gaman að segja frá því að Rabarbarapæið fræga hefur fengið upplyftingu. Sumarútgáfan í ár er með einu litlu epli, kókosmjöli og góðum slatta af Rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti frá Nóa Síríus. Ég legg ekki meira á ykkur. Grunnuppskriftin er hér

RABARBARAPÆRABARBARAPÆ ALBERTSRABARBARIEFTIRRÉTTIR

Rabarbarapæ með rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti
Rabarbarapæ með rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti

RABARBARAPÆ Alberts með karamellusúkkulaði

Rabarbari ca 4-5 leggir

100 g rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti

1 msk kókosmjöl

1 lítið epli skorið í bita

200 g smjör

1 dl sykur

1 tsk lyftiduft

2 dl hveiti

1 tsk vanilla eða vanillusykur

2 egg

Skolið rabarbarann og hreinsið, brytjið í 1-2 cm þykkar sneiðar. Setjið í eldfast form, vel botnfylli eða að vild. Bætið við brytjuðu súkkulaði, epli og kókosmjöli

Bræðið smjör í potti, bætið útí þurrefnunum og loks eggjunum. Blandið vel saman.  Hellið deiginu yfir rabarbarann. Bakið við 170 ° í 25-30 mín eða þangað til pæið er orðið gulleitt að ofan. Berið fram með rjóma eða ís.

Rabarbari rabbabari
Rabarbari

RABARBARAPÆRABARBARAPÆ ALBERTSRABARBARIEFTIRRÉTTIR

— RABARABARAPÆ MEÐ SALTKARAMELLUSÚKKULAÐI —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.