Flugvélakurteisi – að taka tillit til annarra í flugvélum

Flugvélakurteisin -að taka tillit til annarra í flugvélum

Það getur tekið á að vera í flugvél hvort sem er í löngu flugi eða stuttu. Kurteisi á við í flugvélum eins og allsstaðar þar sem fólk kemur saman. Hin gullna regla að taka tillit til annarra til þess að öllum líði sem best er jafn mikilvæg í háloftunum og á jörðu niðri. Það er þröngt í vélunum og þau eru vinnusvæði flugliða, sem við köllum flest dags daglega flugfreyjur og flugþjóna.

.

KURTEISI/BORÐSIÐIR

.

Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga:

Fyrir brottför. Förum á klósettið áður en gengið er um borð í flugvélina, svo að pissuferðirnar byrji ekki um leið og búið er að slökkva á sætisbeltaljósum. Klósett í flugvélum eru „neyðarbrauð.” Takið ykkur sem minnstan tíma á salernunum til að koma í veg fyrir biðraðir. Þið vitið hvað þær geta verið óþolandi.

Muna að hafa lyf alltaf hjá sér í flugvél, ekki setja þau með farangrinum við innritun. Töskur eiga til að vera með sjálfstæðan vilja og lenda á allt öðrum áfangastað.

Afþreying

Undirbúum flugferðina með því að taka með það sem styttir okkur stundir, svo sem krossgátur, Sudoko, bækur, tölvuna eða græju til að horfa á myndir. Munum eftir heyrnartólunum.

.

Flugvélakurteisi – að taka tillit til annarra í flugvélum

Nesti

Ágætt er að taka með eitthvað til að maula í vélinni eins og möndlur, fræ og súkkulaði. Fólk sem er ekki alls kostar ánægt með flugvélamatinn útbýr sér nesti eða gerir aðrar ráðstafanir. Sleppum því að taka með okkur hnetur í vélina eða aðra þekkta ofnæmisvalda. Svo þarf að muna að láta flugliða vita ef um ofnæmi er að ræða um leið og gengið er um borð, en auðvitað er ekki verra ef slíkt er tekið fram um leið og flugmiðar eru keyptir.

Gengið í vélina

Göngum frá farangri og yfirhöfnum hratt og örugglega, þannig að næsti farþegi komi sínum farangri líka fyrir, og fáum okkur sæti, en dólum okkur ekki meðan farþegar bíða fyrir aftan, til að komast til sæta sinna. Svo er alltaf vel þegið, og flýtir brottför, að rétta barnafólki og eldra fólki hjálparhönd með farangur sinn, en reyndar gera flugliðar það líka. Undirbúið það sem þið ætlið að hafa hjá ykkur í sæti og í sætisvösum; sími, bók, peninga, kreditkort, tölvu, vatn, púði, teppi… Góð hugmynd að setja þetta í sér veski eða poka sem settur er í sætið og stærri taska sett í farangursgeymslu fyrir ofan sætið.  

Sterk lykt

Konur sleppa því að naglalakka sig í vélinni og ilmvötnin bíða betri tíma. Lyktsterkur matur eins og harðfiskur, hákarl og sterkur ostur á heldur ekki heldur við. Það er ekki til fyrirmyndar að fara úr skónum á flugi ef fólk á við fótsvita að glíma. Gleymum ekki að fara í sturtu áður en haldið er af stað, fátt er eins óþægilegt og að sitja hið hliðina á illa lyktandi farþega í margar klukkustundir.

Skellt uppúr

Forðumst allt ráp um vélina, þó svo við séum að ferðast með skemmtilegum hópi fólks, svo við teppum ekki gangana fyrir flugliðunum. Vörumst að tala hátt eða hlæja með miklum hávaða þó svo að samferðafólkið sé óskaplega fyndið eða myndin sem við horfum á skemmtileg. Sumir nýta flugið til að vinna á meðan aðrir vilja slaka á og helst sofna.

Sætisarmarnir

Tökum tillit til þeirra sem deila sætisörmunum með okkur. Við „eigum“ ekki armana. Það sama á við um gluggana og gluggaskermana. Farþegar sem sitja við gluggann „eiga” hvorki gluggann né gluggaskerminn.

Hófdrykkja

Höldum drykkju í hófi, bæði áfengis- og annarri drykkju svo að klósettferðir fari ekki úr hófi fram, en ekki síst til að koma í veg fyrir að við missum sjálfsvirðingu vegna ölvunar og „skandaliserum sem birtist strax eftir lendingu á samfélagsmiðlum. Fullir farþegar eru engum til ánægju, hvorki sjálfum sér né öðrum.

Spjallið

Spjall við ókunnuga getur leitt okkur bæði til óvænts fróðleiks og almennrar skemmtunar. Gefum okkur á tal við þá sem sitja við hliðina á okkur en virðum strax ef fólk vill vera án þess að spjalla.

Myndir af flugliðum

Þó svo að flugfreyjur og flugþjónar séu upp til hópa fagurt fólk skulum við láta vera að mynda það eða taka myndbönd.

Rassaköst

Gerum hvað við getum til að reka okkur ekki í sitjandi farþega þegar við göngum eftir ganginum. Verum líka meðvituð um að beina ekki olnbogum eða fótum út á ganginn, svo við bregðum ekki fæti fyrir þá sem ganga um farþegarýmið.  

Notum tækifærið þegar flugliðar fara með þjónustuvagna eða ýtum á þjónustubjölluna ef okkur vanhagar um eitthvað, alls ekki pota í handleggina (eða aðra líkamsparta) á flugliðum!!! Hvort sem við þekkjum þann sem situr innan við okkur eða ekki, erum við tilbúin að rétta eða taka við hlutum sem fara á milli þeirra og flugliða og bjóða þeim að rétta þeim handfarangur úr farangurshólfinu.

Flugleikfimin

Í flugferðum getur verið gott að gera einfaldar teygjuæfingar með höndum og fótum. Á lengri flugferðum er það allt að því nauðsynlegt. Þessar æfingar er auðvelt að gera í sætinu. Allir sem fara í löng flug ættu að klæðast flugsokkum. Þeir draga út hættu á að fólk fái blóðtappa.

Fyrirgefðu

Höllum ekki sætinu aftur nema að fengnu samþykki hjá þeim sem fyrir sitja fyrir aftan okkur, best er að sleppa því alveg að halla aftur sætinu.

Við biðjum fólk afsökunar og þökkum því fyrir að standa upp fyrir okkur. Þegar farið er til sætis framhjá öðrum er reglan ávallt sú að snúa að þeim sem stendur upp fyrir okkur. Í flugvél getur þetta verið afar óþægilegt og best er að hafa samráð um hvernig best sé að bera sig að. Sumir vilja síður standa upp og þessvegna þurfum við stundum að viðhafa dálítið klifur og kannskí ekki alveg kórrétta líkamsburði.

Ef við vöknum með hálft andlitið á öxl ókunnra er betra að biðjast afsökunar, en láta sem ekkert sé. Svona lagað fer ekki framhjá neinum. Eins ef gripið er af skelfingu í læri annarra farþega, eða líkamshluta, í ókyrrð.

Að lokinni lendingu

Það getur verið hressandi að standa á fætur strax eftir lendingu og teygja aðeins úr sér, sérstaklega eftir langt flug. Hins vegar flýtir það ósköp lítið fyrir að ryðjast á fætur í von um að komast sem fyrst út úr flugvélinni. Það er aldrei of oft kveðin vísa að muna eftir að taka allt með sér, bæði úr sætisvasanum, hólfinu fyrir ofan og ef eitthvað var geymt undir sætið. Að lokum þökkum við flugliðum fyrir þegar við förum út úr vélinni með bros á vör.

  • Réttum ekki flugliðum notaðar barnableyjur
  • Sleppum því að setja fæturna á sætisarma hjá farþegunum fyrir framan.
  • Flughræddir farþegar ættu að láta flugliða vita af því. Flugliðar aðstoða og veita ómetanlegan stuðning.

  • Greinin birtist í Morgunblaðinu í desember 2018

.

KURTEISI/BORÐSIÐIR

FLUGVÉLAKURTEISI

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.