Essensia – Veitingahúsið Essensia á Hverfisgötu stimplar sig strax hressilega inn í veitingahúsaflóru höfuðborgarinnar svo eftir er tekið. Faglega að öllu staðið og hinn ítalski sunnan blær staðarins er kærkomin viðbót í fjölbreyttri matarborg sem Reykjavík er. Klassískir suðrænir bragðgóðir réttir einkenna staðinn. Réttir sem gestir geta deilt og eru hvattir til að deila. Enn ein úrvalsrósin í hnappagat Hákons Más Örvarssonar.
Afritaðu og límdu þessa vefslóð í WordPress vefinn þinn til þess að fella inn
Afritaðu og límdu þennan kóða yfir í vefinn þinn til þess að fella inn