Edda Björgvins, einstakur gleðigjafi heldur matarboð

Edda Björgvins – einstakur gleðigjafi. Edda Björgvinsdóttir stórleikkona hefur glatt þjóðina í áratugi og er hvergi nærri hætt. Hún hefur örugglega komið oftar fram í Áramótaskaupum og skemmtiþáttum en nokkur annar. Edda bauð góðum vinum sínum í „létta veislu” eins og hún orðaði það sjálf. Hún lék á alls oddi, sagði okkur frá því að í sumar verður frumsýnd kvikmynd sem hún leikur í og í haust fer hún með eitt af aðalhlutverkunum í nýju leikriti Ragnars Bragasonar sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu. Auk þess ferðast hún um og heldur óborganlega skemmtilega fyrirlestra. Já svo er hin orðheppna Bibba aldrei langt undan