Félag royalista í Neskaupstað

 Alvöru breskar skonsur (British Scones) SVAMPTERTA svamptertubotn tertubotn rjómatertubotn NORÐFJÖRÐUR NESKAUPSTAÐUR Alvöru breskar skonsur (British Scones) Steinunn Zoëga Hildur Ýr Gísladóttir Royal Benedikt karl Gröndal Margrét Perla Kolka Leifsdóttir Guðrún Óskarsdóttir Sveinn Halldór Oddson Zoëga Auðbjörg Einarsdóttir Svala Skúladóttir Eva Mjöll Þorfinnsdóttir Albert Bergþór Elín Guðmundsdóttir Félag royalista Clotted cream og scones Alvöru Breskar skonsur (British Scones) Clotted cream og scones royal félag norðfjöður
Félag Royalista í Neskaupstað. F.v. Guðrún Óskarsdóttir, Margrét Perla Kolka Leifsdóttir,  Hildur Ýr Gísladóttir, Steinunn Zoëga, Sveinn Halldór Oddson Zoëga, Auðbjörg Einarsdóttir, Svala Skúladóttir, Eva Mjöll Þorfinnsdóttir, Albert, Bergþór og Elín Guðmundsdóttir. Myndina tók og kökurnar bakaði Benedikt Karl Gröndal

Einu sinni í mánuði hittist Félag Royalista í Neskaupstað og ber saman bækur sínar á líflegum kvöldum. Þau nýta hvert (royal)tækifæri. Stundum eru þemakvöld, meðlimir velja sér konungsfjöldu og segja frá henni, það eru ýmis heimaverkefni og fleira mætti nefna.

👑

ROYALNESKAUPSTAÐURDROTTNINGARPRINSESSUR

👑

Hindberja Charlotte terta

Hindberja Charlotte terta Eins og glögglega má sjá á síðunni blundar í mér royalisti. Fyrir ekki svo löngu síðan fékk ég fyrirspurn frá royalistunum í Neskaupstað og var beðinn um álit á mynd sem birtist eftir skírn í ensku konungsfjölskyldunni. Eitt leiddi af öðru og við Bergþór hittum svo hópinn á hátíðarfundi og fórum yfir nokkur atriði um konungsfjölskyldur: borðsiði, kurteisi og almennt hvernig á að hafa sér í kringum slíkan aðal. Á eftir var sest til borðs og haldið áfram að spjalla um allt milli himins og jarðar sem tengist kóngafólki.

Hindberja Charlotte terta

Hindberja Charlotte terta

Hindberjamús:
2 1/2 b frosin hindber
1/2 b sykur
2 msk ferskur sítrónusafi
4 – 6 matarlímsblöð
3 b rjómi
6 msk flórsykur confectioners powdered sugar

Svamptertubotn:
4 stór egg (við stofuhita)
2/3 b sykur
2/3 b hveiti
1/4 tsk lyftiduft
200 gr af Lady Fingers (eða nóg til að hylja hringinn utan um kökuna)
3-4 matskeiðar hindberjasulta (Hvaða sulta sem er, sem ykkur finnst góð)

Síróp:
1 b heitt vatn
1 msk safi úr sítrónu
1/2 b sykur
(Ég setti dass af Bacardi R77ass út í því átti það en það er auðvitað valfrjálst)
Allt hrært saman þar til sykurinn leysist upp. Látið kólna

Til að skreyta kökuna:
Fersk hindber
Myntulauf
Rjómi, þeyttur.
Dökkir súkkulaði dropar (valfrjálst)

Aðferð:
Hindberjasíróp:
Setjið 2 ½ bolla af frosnum jarðaberjum og ½ bolla sykri í pott. Hitað saman og hrært stöku sinnum þar til þetta lítur út eins og sulta.
Fjarlægið af hellunni og sigtið. Notið skeið til að þrýsta og ná sem mestum safa úr berjunum. (Maður ætti að ná allaveganna 2/3 bolla af sýrópi).
Fyrir matarlímið: Setjið matarlímsblöðin í kalt vatn þar til þau eru mjúk, hellið vatninu a fog setjð blöðin í örbylgjuna í 10 – 15 sekúndur. Setjið matarlímið síðan út í sírópið ásamt tveimur matskeiðum af sítrónusafa.

Svamptertubotn:
Hitið ofninn í 180°c. Setjið bökunarpappír í botnin og á hliðar á bökunarformi.
Hrærið 4 stór egg saman á miklum hraða í 1 mínútu. Hellið 2/3 bolla sykri jafnt og þétt út í eggin og hrærið saman í 7 mínútur eða þar til blandan er orðin þykk og 3-4 stærri.
Blandið saman hveiti og lyftiduftinu. Hellið því síðan út í eggjablönduna í tveimur hlutum.
Gætið þess að allt blandist vel saman svo ekki leynist hveiti kögglar hér og þar í deginu. Passið samt að ofhræra ekki.
Bakið síðan í 23 – 25 mínútur eða þar til botninn orðin gullbrún að ofan.
Þegar botnin er tilbúinn, takið hann úr forminu og setjið hana á grind svo hún kólni.
Þegar hún hefur náð stofuhita takiði langan hníf og skerið kökuna lárétt í tvo helminga.
Annar helmingurinn fer í botninn á kökunni og hinn í miðjuna. Það verður útskýrt síðar.

Charlotte kakan sett saman:
Setjiði filmuplast utan um hringlaga opnanlegt kökuform. Skerið síðan 1 cm af allan hringinn af kökubotninum. Hægt að nota skæri. Setjið fyrsta botnin síðan í neðst bökunarformið
Takið síðan Lady fingers og skerið 1 – 1 ½ cm af þeim. Komið “fingrunum þétt fyrir allan hringinn, skurðurinn snýr niður, í kringum svampbotninn. Pennslið botninn með sykursýrópinu og svo “fingurna”. Leyfið botninum og fingrunum að blotna, ekki vera hrædd. Smyrjið síðan þunnu lagi af hindberjasultu á botninn.

Þeytið 3 bolla af rjóma ásamt 6 matskeiðum af flórsykri á miklum hraða þar til rjóminn er orðinn stífur.
Þegar hindberjasírópið er orðið stofuheitt (ekki bíða samt of lengi, því það gæti orðið of þykkt og erfitt að blanda).
Blandið rjómanum rólega saman við sírópið. ¼ fjórða í einu. Þetta verður að hindberjamúsin.

Setjið helminginn af músinni í kökuformið. Takið hinn helminginn af svamptertubotninum og skerið 2 cm af honum allan hringinn. Setjið síðan botninn ofan á músina. Pennslið með sykursírópinu og smyrjið þunnulagi af hindberjasultunni á botninn. Hellið restinni af músinni ofan á botninn.

Gott er að gera þetta deginum áður en þið berið kökuna fram. Þá nær músin að stífna og botnarnir að draga allt bragðið í sig.

Skreytið síðan að vild með rjómanum, berjunum. Saksið myntulaufin og súkkulaðið og stráið létt yfir.

Clotted cream og scones

Alvöru breskar skonsur (British Scones)

2 b hveiti
2 msk sykur
4 tsk lyftiduft
½ tsk salt
3 msk ósaltað smjör, kalt
2/3 b mjólk, köld
1 eggjarauða + 1 msk mjólk til að pensla skonsurnar

Hitið ofninn í 220°C
Hrærið hveitinu, sykrinum, lyftiduftinu og smjörinu saman í skál. Notið hendurnar. Blandið saman þangað til þetta lítur út eins og brauðmylsna.
Bætið mjólkinni rólega út í. Notið nóg af mjólk svo degið komið vel saman og engir kekkir verða í deginu. Degið ætti að vera frekar klístrað
Setjið degið á borðflöt og dreifið vel af hveiti ofan á. Hnoðið deigið nokkrum sinnum þar til það er slétt. Fletjið degið út svo það verði 2-3 cm þykkt.
Notið eitthvað hringlaga til að skera út 4 til 5 cm hringi. Gætið þess að þrýsta alla leið í gegnum degið og snúið. Þetta hjálpar skonsunum að lyfta sér betur. Án gríns.
Setjið skonsurnar á bökunarpappír. Pennslið þær létt með eggjarauðublöndunni.
Bakið þær í 12 – 15 mín eða þar til þær eru gullinbrúnar.
Fjarlægið úr ofni og leyfið þeim að kólna í 30 mín. Ef þið viljið mýkri skonsur þá er hægt að setja viskastykkir yfir þær á meðan þær kólna.
Njótið með sultu að eigin val og clotted cream. Ég mæli reyndar eindregið með lemon curd með þessu.

Clotted cream

500 ml rjómi

Hitið ofninn í 80°C
Hellið rjómanum í stórt eldfast mót. Passið bara að rjóminn verði nógu dreifður og ekki of djúpur.
Bakið rjómann í 8 tíma. Gott að gera það yfir nótt.
Takið rjóman út. Leyfið honum að kólna í stofuhita.
Rjómin ætti að vera búinn að skilja sér. Skafið efsta lagið af með skeið og setjið annað ílát.
Ekki henda neðstalaginu og því rjóminn heldur áfram mynda þykka skán. Skafið af og til þangað til þið hafið fengið nóg.
Hrærið saman því sem þið skófuð af og setjið í kæli.
Fullkominn clotted cream.

Fundarboð Félags Royalista í Neskaupstað
Gúrkusamlokur

👑

ROYALNESKAUPSTAÐURDROTTNINGARPRINSESSUR

— FÉLAG ROYALISTA Í NESKAUPSTAÐ —

👑

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.