Vilkovöfflur – við viljum Vilko

vilkó vilko vöfflur beikon og egg pönnukökur úr vöffludeigi
Vöfflur með beikoni og eggi

Þó við flest tengjum ilmandi nýbakaðar vöfflur við sultu og rjóma þá er um að gera að leyfa hugmyndafluginu að ráða. Sjálfum finnst mér gott að eiga pakka af Vilkóvöfflumixi og grípa til – það eina sem þarf að bæta við er vatn og þá er tilbúið fínasta vöffludeig. Sérlega hentugt þegar gesti ber að garði með stuttum fyrirvara. Með því að þynna deigið aðeins meira er komið fínasta pönnukökudeig. Sumir bæta við bragðefnum eins og vanillu, möndludropum, sítrónu eða kardimommum. Ekkert vandamál

VÖFFLURRABARBARASULTARJÓMIVILKO

Vöfflur með ávöxtum og Nutella slær alltaf í gegn
Vöfflur með reyktum silungi, eggjum og sinnepssósu

Færslan er unnin í samstarfi við Vilko

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.