Sögusýning um Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði

 

Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði sögusýning sýning tónlistarskóli ísafjarðar ísafjörður húsmæðraskóli grautó
Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði

Sögusýning um Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði. 

Húsmæðraskólinn Ósk var stofnaður árið 1912 á Ísafirði og starfræktur til 1990. Til stendur að setja upp sögusýningu í Tónlistarskólanum, húsinu sem var reist fyrir Húsmæðraskólann og tekið í notkun árið 1948. 

Við óskum eftir einu og öðru gefins sem gæti nýst okkur, svo sem myndum, vefnaði, útsaumi, uppskriftabókum, minningabókum, litlum munum, skólaspjöldum og sögum. 

Þið megið gjarnan benda afkomendum kvenna sem voru á Húsmæðraskólanum Ósk frá þessu með von um að við fáum fjölmargt til að moða úr.

🇮🇸

— HÚSMÆÐRASKÓLINN ÓSK

— ÍSAFJÖRÐUR — HÚSMÆÐRASKÓLAR — SKÓLAREGLUR —

🇮🇸

Finney Rakel Árnadóttir og Albert Eiríksson
Finney Rakel Árnadóttir og Albert Eiríksson

Hægt er að senda póst eða hringja:

Finney Rakel Árnadóttir, safna- og þjóðfræðingur s. 821 8124 og  finneyrakelarna@gmail.com 

Albert Eiríksson s. 864 2728 og albert.eiriksson@gmail.com 

Merkingar úr Húsmæðraskólanum Ósk

🇮🇸

— HÚSMÆÐRASKÓLINN ÓSK

— ÍSAFJÖRÐUR — HÚSMÆÐRASKÓLAR — SKÓLAREGLUR —

— HÚSMÆÐRASKÓLINN ÓSK Á ÍSAFIRÐI —

🇮🇸

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.